Meistararnir í Cavaliers að fá veglega aðstoð 26. febrúar 2017 22:30 Deron í leik með Dallas í vetur. Vísir/Getty
Talið er að Cleveland Cavaliers muni tilkynna eftir helgi að leikstjórnandinn Deron Williams sé búinn að semja við liðið út tímabilið en honum er ætlað að koma inn af bekknum til að veita Kyrie Irving hvíld í leikjum. Deron var á dögunum leystur undan samningi hjá Dallas Mavericks eftir eitt og hálft ár í herbúðum Dallas-manna en hann lék áður með Brooklyn Nets og New Jersey Nets og Utah Jazz sem valdi hann á sínum tíma með þriðja valrétt í nýliðavalinu árið 2005. Hefur hann fimm sinnum á ferlinum verið valinn í stjörnulið NBA-deildarinnar og tvívegis í annað úrvalslið (e. ALL-NBA second team) deildarinnar en hann hefur lengst komist með liði í úrslit Austurdeildarinnar árið 2007 með liði Utah Jazz. LeBron James, stórstjarna liðsins, kallaði eftir því að forráðamenn félagsins myndu bæta við leikmönnum sem gætu styrkt leikmannahópinn en Deron er með 16,6 stig og 8,2 stoðsendingu að meðaltali í leik á ferlinum. Hann ætti einnig að gefa liðinu góða skyttu fyrir utan þriggja stiga línuna þar sem hann er með 50% nýtingu á ferlinum en liðið var þegar búið að bæta við sig skyttunni Kyle Korver frá Atlanta Hawks.
NBA Mest lesið Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Lík fannst á leikvangi Charlton Enski boltinn Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Fleiri fréttir Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjá meira