Börnin í heiminum María Bjarnadóttir skrifar 17. febrúar 2017 07:00 3ja ára gamalt barn komst í fréttirnar með nýju merkjatöskuna sína sem kostaði andvirði 115 þúsund íslenskra króna. Helmingur flóttamanna í heiminum eru börn og í Nepal gengur illa að ráða við að 12 ára gamlar stúlkur séu giftar fullorðnum mönnum – þó að barnagiftingar séu bannaðar með lögum í landinu. Aðstöðumunurinn sem börn heimsins búa við er skelfilegur. Framfarirnar sem manneskjum hefur tekist að ná fram eru ekki í boði fyrir alla. Þó að okkur hafi tekist að finna upp pensilín og peningamarkaðsbréf virðist okkur allsendis fyrirmunað að koma í veg fyrir að börnum sé nauðgað. Líka á Íslandi. Í sumarfríinu keyrðum við fjölskyldan í gegnum 10 lönd og jafn mörg landamæri með okkar hvítu húð og bláa vegabréf. Fengum ítrekaðar hamingjuóskir með fótboltastrákana okkar og fallegu náttúruna. Landamæraverðir eru almennt mjög spenntir fyrir að sjá norðurljósin. Í Szeged í Ungverjalandi fengum við okkur ís og keyptum evrur. Þegar við komum að landamærunum til Serbíu var ísinn rétt að klárast og krakkarnir ekki sammála um að hverjum væri komið að hafa iPadinn. Á meðan við sátum í bílnum í röðinni byrjaði að rigna eins og hellt væri úr fötu. Og þá sá ég þær. Flóttamannabúðirnar. Risavaxnar tjaldbúðir sem hýstu fjölskyldur eins og okkur. Börn sem hafa hrakist undan stríði og fá ekki annað skjól en tjald á landamærum. Berskjölduð og ekki með blátt vegabréf. Það er óþolandi að börn njóti ekki frelsis og friðar – óháð því hvar þau fæðast eða búa. Það er rétt að minna á þetta nú þegar árlegt hrun á skráningarkerfi fyrir niðurgreidd frístundaheimili á sér stað.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein María Bjarnadóttir Tengdar fréttir Hljóð og mynd Fjármálaráðherra hefur kynnt drög að eigendastefnu fyrir fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins. 17. febrúar 2017 07:00 Mest lesið Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun
Hljóð og mynd Fjármálaráðherra hefur kynnt drög að eigendastefnu fyrir fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins. 17. febrúar 2017 07:00
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun
Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson Skoðun