Sverrir Ingi og félagar rúlluðu upp Andalúsíuslagnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. febrúar 2017 21:44 Sverrir Ingi Ingason er að gera flotta hluti á Spáni. vísir/getty
Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmiðvörður í fótbolta, og félagar hans í Granada pökkuðu Real Betis saman, 4-1, í spænsku 1. deildinni í kvöld. Sigurinn var hriklega mikilvægur fyrir Granada sem er í harðri fallbaráttu og ekki var minna sætt fyrir heimamenn að vinna svona stóran sigur á öðru Andalúsíuliði. Mehdi Carcela-Gonzales kom Granada yfir, 1-0, á 18. mínútu og tíu mínútum síðar jók Adrian Ramos forskotið í 2-0. Andreas Pereira, miðjumaðurinn efnilegi sem er á láni frá Manchester United, kom Granada í 3-0 á 33. mínútu og leikurinn sama og unninn eftir rúman hálftíma. Adrian Ramos kom Granada í 4-0 á 64. mínútu en Pereira lét reka sig af velli eftir viðskipti við Matias Leiva, leikmann Betis, tveimur mínútum síðar en Betis-maðurinn fékk einnig að sjá rautt. Petros minnkaði muninn fyrir Betis þegar fimmtán mínútur voru eftir en það var alltof lítið og alltof seint og frábær sigur Granada í höfn. Granada er búið að vinna tvo af síðustu þremur leikjum liðsins með Sverri Inga í þriggja manna miðvarðalínu en það er nú með 16 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Spænski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Sjá meira