Jovetic kominn í klúbb með Maradona og Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2017 12:00 Stevan Jovetic er nýkominn til Sevilla en strax farinn að skrifa söguna. Vísir/Getty
Svartfellingurinn Stevan Jovetic tryggði Sevilla 2-1 sigur á Real Madrid í gærkvöldi og sá með því öðrum fremur að 40 leikja sigurganga Real Madrid endaði á Ramón Sánchez Pizjuán leikvanginum í Andalúsíu. Stevan Jovetic skoraði einnig í 3-3 jafntefli liðanna á sama leikvangi í spænska bikarnum á fimmtudagskvöldið og komst með þessum tveimur mörkum í fámennan hóp. Meðlimir í klúbbnum eru ásamt Stevan Jovetic þeir Diego Maradona (með Barcelona 1983) Felipe (1989) Giovanni (1997) og Lionel Messi (með Barcelona 2011). Þeir eru þeir einu sem hafa náð að skora í tveimur leikjum á móti Real Madrid með aðeins þriggja daga millibili. Þetta eru einmitt fyrstu leikir Stevan Jovetic með spænska liðinu og jafnframt þeir fyrstu hjá honum í spænska boltanum. Ekki slæmt að skora tvisvar á þremur dögum á móti toppliðinu sem jafnframt er Evrópumeistari og heimsmeistari félagsliða. Stevan Jovetic er nýkominn til Sevilla á láni frá ítalska félaginu Internazionale en margir muna eftir því þegar Jovetic var hjá Manchester City þar sem hann skorað 8 mörk í 28 leikjum frá 2013 til 2015.Stevan Jovetic fagnar markinu sínu.Vísir/GettyÚltimos q le marcaron al Madrid en 2 partidos distintos en 3 días:Maradona (1983)Felipe (1989)Giovanni (1997)Messi (2011)JOVETIC (2017)— MisterChip (Alexis) (@2010MisterChip) January 15, 2017
Spænski boltinn Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Golf Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Fótbolti Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Íslensku landsliðskonurnar allt í öllu í sigri Inter Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu Albert ekki meira með íslenska landsliðinu „Þetta er þorpið manns“ Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael „Við eigum að vinna þessa leiki“ Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig „Úrslitin eru vonbrigði og leikurinn vonbrigði“ „Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk“ „Láta kné fylgja kviði og keyra dálítið á þá“ Sjáðu mörk úr leik Íslands og Eistlands ásamt vítavörslu Hákons Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Byrjunarlið Íslands gegn Eistlandi: Stefán Teitur og Daníel í hjartanu - Orri fremstur Sjá meira