Meistaraefnin í vandræðum með New Orleans | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. desember 2016 07:19 Stephen Curry skoraði 30 stig í sigri á New Orleans. vísir/getty
Sex leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Golden State Warriors þurfti að hafa mikið fyrir því að vinna New Orleans Pelicans á útivelli. Lokatölur 109-113, Golden State í vil. Stephen Curry var með 30 stig í liði Golden State og Kevin Durant skoraði 27 stig. Þá var Draymond Green með þrefalda tvennu; 12 stig, 12 fráköst og 10 stoðsendingar. Hann stal einnig fjórum boltum, þ.á.m. einu sinni frá Anthony Davis á mikilvægu augnabliki á lokasekúndunum. Davis var stigahæstur í liði New Orleans með 28 stig. Kevin Love skoraði 29 stig og tók 13 fráköst þegar Cleveland Cavaliers vann sterkan sigur á Memphis Grizzlies, 103-86. Þetta var fimmti sigur meistarana í röð en þeir sitja á toppnum í Austurdeildinni. LeBron James og J.R. Smith skoruðu báðir 23 stig fyrir Cleveland í nótt. Zach Randolph skoraði 18 stig fyrir Memphis sem var búið að vinna fimm leiki í röð áður en að leiknum í nótt kom. Portland Trail Blazers vann góðan sigur á Oklahoma City Thunder, 114-95. Mason Plumlee var stigahæstur í jöfnu liði Portland með 18 stig. Damian Lillard kom næstur með 17 stig. Russell Westbrook var að vanda atkvæðamestur hjá Oklahoma. Hann skoraði 20 stig, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar.Úrslitin í nótt: New Orleans 109-113 Oklahoma Cleveland 103-86 Memphis Portland 114-95 Oklahoma Atlanta 120-131 Orlando Chicago 94-99 Minnesota Phoenix 113-111 NY Knicks
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira