Nostrað við hátíðarborðið Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 18. desember 2016 12:00 Berta með netta og aflanga skreytingu sem hentar vel á hátíðarborð sem er hlaðið veitingum. Visir/GVA
Blómstrandi hýasintur á hátíðarborðið. Fréttablaðið/GVA Berta Björk Heiðarsdóttir, blómaskreytir hjá Blómagalleríinu við Hagamel, segir að á jólum sé tilvalið að minna á ljósið, vorið og að brátt fari sól að hækka á lofti. „Jólaskreytingar minna á ljós og birtu, náttúruna. Að það kemur aftur vor og að sólin hækkar á lofti,“ segir hún. Hún hefur útbúið þrjár skreytingar á hátíðarborðið. Eina borðskreytingu í aflöngum potti sem hentar vel á borð sem er hlaðið veitingum. „Þetta er nett og falleg skreyting sem er auðvelt að koma fyrir. Í henni hef ég amaryllis, furu, mosa og svolítið glimmer. Mjó kertin gefa fallegt yfirbragð.“ Hún mælir einnig með því að skreyta með hýasintum sem eru í blóma í desember og janúar. „Ég nota sérstök glös fyrir hýasintur og skreyti á einfaldan hátt því blómin eru svo falleg,“segir Berta.Þriðja skreytingin er viðameiri og hentar á stórt borð. „Ég nota gylltan poka úr endurunnu efni, skreyti með furu, könglum, kristþyrnisblómum og greinum. Þetta er umhverfisvænt og náttúrulegt. Mér finnst það eiga við í desember; náttúran og ljósið.“Ítölsk jólakaka í eftirétt Anna Soffía Ásgeirsdóttir matreiðir ofan í leikara og starfsfólk Borgarleikhússins. Hún var kokkur í mörg ár á La Primavera og í leikhúsinu prísar fólk sig sælt með hana. Anna Soffía leggur til eftirrétt sem var á matseðli La Primavera í desember, ítalska jólaköku. „Þetta er réttur sem að við vorum með á La Primavera í desember. Þetta er ítölsk jólakaka. Rétturinn er gerður úr panettone-kökum sem eru bakaðar með rjóma, mjólk, eggjum og sykri. Kakan er svo borin fram með ferskum berjum og vanillusósu,“ segir Anna Soffía.Ítölsk jólakaka með ferskum berjum og vanillusósu. Fréttablaðið/StefánPanettone – ítölsk jólakaka 500 ml rjómi 170 gr sykur 500 ml mjólk 4 stk. egg Kakan er skorin í sneiðar og hver sneið er smurð með ágætis lagi af smjöri. Allt hráefnið saman í pott og hitað þangað til orðið allt er vel blandað saman og aðeins byrjað að þykkna. Kökusneiðunum er raðað í form og þykkt lag af blöndunni hellt yfir þær. Bakað með álpappír, í 35 mín á 150°C hita.Vanillusósa 500 ml mjólk 30 gr sykur 2 stk. vanillustangir 5 stk. eggjarauður 30 gr sykur Mjólk, sykur og vanilla hitað saman í potti. Eggjarauður og sykur þeytt vel saman. Öllu blandað saman, sett í skál og látið þykkna yfir vatnsbaði.Fjölskylda Sigmars heldur matarboð í hans anda á jólum og gaf út bók með uppskriftum hans.Sálin sett í pottinn Sigmar B. Hauksson þekktu landsmenn sem matgæðing og ástríðukokk. Hann lést á aðfangadag í desember árið 2012 eftir skammvinn veikindi. Fjölskylda hans ákvað að heiðra hann með matreiðslubók með uppskriftum hans, bókin Úr búri náttúrunnar inniheldur sögur af Sigmari og uppskriftir eftir hann. Bróðir hans, Jón Víðir Hauksson kvikmyndagerðamaður, tók saman uppskriftirnar ásamt nokkrum félögum hans.„Sigmar hélt alltaf jólaboð í fjölskyldunni sem ég og konan mín Brynhildur höfum haldið áfram að gera eftir að hann féll frá. Þá gerum við það í hans anda, hann notaði mikið afurðir úr veiðinni og úr náttúrunni. Nýtti allt úr bráðinni og það sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða, ber, sveppi og jurtir. Hann var einstakur að þessu leyti, frumkvöðull í því að nýta það sem náttúran gaf og var mikill talsmaður þess að nýta alla bráðina og allt sem til féll. Uppskriftin sem ég gef sem forrétt á jólahátíðarborðið er réttur sem enginn verður svikinn af. Risotto með reyktum laxi. Sigmar sagði að þegar risotto er gert þarf fyrst að setja sálina í pottinn, síðan hræra varlega með trésleif af stakri alúð,“ segir Jón Víðir.Risotto að hætti Sigmars, ástríðukokks sem féll frá á jólum fyrir fjórum árum síðan. Mynd/Jón VíðirRisotto með reyktum laxi 2 msk. skalottlaukur 2 hvítlauksrif 2 msk. fennel, saxað 150 g arborio-hrísgrjón 1 l grænmetissoð 1/2 l rjómi Hvítvín eða vermouth 2 msk. maskarpone-ostur Parmesanostur eftir smekk, rifinn 100 g reyktur lax eða heitreykt bleikja, grófsaxað Safi úr einni sítrónu Rifinn börkur af sítrónu Dill, saxað Skalottulaukur og fennel steikt í smjöri og olíu. Hrísgrjónum bætt við og steikt stutta stund. Skvetta af vermouth eða hvítvíni bætt í og heitum grænmetiskrafti, ausu í senn og hrært varlega en stöðugt þar til hrísgrjónin eru al dente, soðin - ekki mauksoðin. Rjóma, maskarpone og parmesan hrært saman við. Safi og börkur af sítrónu sett út í. Lax/bleikja og dill sett út í, hrært varlega saman og skammtað á diska.
Jólafréttir Mest lesið Uppskrift að piparkökuhúsi Jólin Gyðingakökur Jól Svona gerirðu graflax Jól Gyðingakökur ömmu eru jólin Jól Laufabrauð Jól Fylltar kalkúnabringur Jólin Eltist ekki við tísku í skreytingum Jól Mömmukökur bestar Jólin Jólagjafir undir 1000 kr. Jól Rómantísk jól undir stjörnumergð Jól