Risastytta af Jeremy Clarkson 8. desember 2016 11:35 Engin smásmíði þessi stytta.
Þó svo aðeins þrír þættir af nýjum The Grand Tour þáttum þremenninganna Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May hafi nú verið sýndir er ljóst að þeir eru að slá í gegn. Áhorf á þættina hefur verið frábært og aldrei hafa þættir á vegum Amazon Prime fengið annað eins áhorf. Við því var kannski að búast þar sem þremenningarnir voru áður með vinsælasta og víðförlasta þátt heims, Top Gear. Eitthvað virðist þó vanta á markaðssetninguna hjá Amazon ef marka má það sem hér sést, eða risastóra styttu af Jeremy Clarkson og er stórt höfuðið óvarið aftast á þessum flutningabíl sem sagt er í Twitter færslu að fari hér um þjóðvegi Washington ríkis. Á mynd sem fylgir sést þó að í bílnum sem myndin er tekin úr er hraðamælir sem mælir í kílómetrum og óíklegt er að slíkir bílar finnist á bandarískum vegum. Því eru þessar myndir líklega teknar í öðru landi, en hvar er ekki vitað. Á flutningabílnum eru vafalaust aðrir líkamspartar Jeremy Clarkson og á því líklega eftir að setja styttuna saman á áfangastað. Þar sem enn standa yfir tökur á núverandi þáttaröð er sennilegt að styttan af Jeremy Clarkson komi við sögu seinna í þeim og kannski líka styttur af Richard Hammond og James May. Á bílnum er kílómetra hraðamælir, svo líklega er þetta ekki í Bandaríkjunum.Þessi mynd bendir til þess að smíðaðar verði einnig styttur af Richard Hammond og James May.
Styttur og útilistaverk Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent