19 ára tekinn á 335 km hraða Finnur Thorlacius skrifar 16. nóvember 2016 14:16 208 mílna hraði er 335 km/klst.
Þeim brá aðeins í brún lögreglunni í Oklahoma þegar talan 335 km/klst stóð á hraðamælingartæki þeirra um daginn, en þá veittu þeir 19 ára manni eftirför á Ford Mustang bíl. Þegar lögreglan tók fyrst eftir hraðakstri unga mannsins mældist hann “aðeins” á 135 km hraða og hófst þá eltingaleikur lögreglunnar við Mustang bílinn. Hann jók sífellt hraðan og mældist á endanum á 335 km hraða, sem er hreint með ólíkindum. Í fyrsta lagi á venjulegur Ford Mustang ekki að ná nálægt því þessum hraða, Mustang GT er takmarkaður við 250 km hraða og Mustang Shelby GT500 nær 304 km hraða. Ungi maðurinn mældist hinsvegar á 335 km/klst. Það er þó ástæða fyrir þessum hraða unga mannsins. Hann hefur tjúnað og breytt bíl sínum svo mikið að hann skilar 1.200 hestöflum. Það er þó ekki víst að þessi ungi maður að nafni Hector Fraire fái að njóta mikið hins öfluga bíls síns á næstunni því á endanum náði lögreglan að stöðva förina er hann lenti á rauðu ljósi og hlýddi þá loks lögunum. Hann má eiga von á vænni sekt og ökuleyfissviptingu, en ekki er ljóst hvort hann hafi þurft að dvelja lengi í fangelsi fyrir glæfraför sína.
Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent