Lífið

Hver er harðasti iðnaðarmaðurinn á Íslandi 2016?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta eru harðir iðnaðarmenn.
Þetta eru harðir iðnaðarmenn.
Útvarpsstöðin X977 leitar að harðasta iðnaðarmanninum á Íslandi. Undanfarnar vikur hefur hlustendum X977 boðist að koma með tilnefningar um harðasta iðnaðarmanninn og komu inn fjölmargar ábendingar um slíka. Sérstök dómnefnd fór svo yfir allar tilnefningar.

Hún hefur valið úr tíu einstaklinga sem þóttu skara framúr og hefst nú kosning á harðasta iðnaðarmanninum á Íslandi í dag.

Síðar í mánuðinum verður tilkynnt um sigurvegarann í keppninni og verður það gert á útvarpsstöðinni X-977.

Hægt er að taka þátt í kosningunni á síðunni visir.is/hardasti.



Hér að neðan má kynna sér iðnaðarmenninaMaría Svavarsdóttir

Mæja Smiðja eins og hún er best þekkt, er ein sú allra duglegasta og vinnusamasta og gefur karlpeningnum ekkert eftir, það held ég að allir sem hafa unnið með henni geta verið sammála um. Ekki nóg með að smíða þá fer hún um allar sveitir landsins og leysir bændur af, mjólkar kýr, slær og rakar tún og sinnir almennum bústörfum eins og herforingi.

Halldóra Þorvarðardóttir

Hún er 74 ára og hefur verið að vinna sem blikksmiður í yfir 30 ár og ekkert farin að hugsa um að hætta. Hún var einnig fyrsta kona á Íslandi sem keyrði strætó. Ásamt því að vera duglegasta manneskja sem til er og með stærri "byssur" en margir að þá er hún besta amma í heiminum.

Melkorka María Guðmundsdóttir

Síkáti skvísusmiðurinn sem er spenntari en flestir aðrir fyrir steypuvinnu, og hefur brennandi áhuga á trésmíði.

Ágúst Flóki Þorsteinsson

Flóki er einn harðasti iðnaðarmaður landsins. Stjörnupípari og þúsundþjalasmiður sem kallar ekki einu sinni ömmu sína ömmu sína. Þá daga sem hann er ekki að gera allt sjálfur í pípulagningunum, því allir aðrir eru bölvaðir aular, þá er hann í sveitinni að djöflast. Aldrei lognmolla í kringum þennan meistara sem lítur á 20 tíma á dag í heyskap vera frí.

Páll Sveinbjörnsson

Þó hann sé pabbi minn þá veit ég ekki um harðari iðnaðarmann. Hann er komin á sjötugsaldurinn en vinnur samt úti, vikum saman í 5 gráðu frosti. Vinnur alla virka daga, oftast frameftir kvöldi, og flesta laugardaga. Enginn helv... fúskari, vandvirkur og fagmaður fram í fingurgóma. Hef unnið með mörgum smiðum sem voru fúskarar, svona monkey-reddinga-gæjar. Engum sem vinnur eins og pabbi. Hann finnur alltaf lausnir á vandamálum og er harðasti húsasmíðameistari sem ég þekki. Palli smiður.

Ottó Örn Pétursson

Hann Ottó er einn sverasti pípari sem ég nokkurn tíman augum litið, leysir öll verkefni einsog fagmaður. mætir æi ræktina á hverjum degi og gerir allt sem gera þarf. meðan hann vinnur þessa erfiðis vinnu og bjargar fólki landsins frá kulda og öðrum almennum leiðindum, sit ég á skrifstofuni og hugsa fallega til hans Ottó, Hann er maðurinn! svo undir þessu harða yfirborði er hann líka góður vinur og magnaður pabbi.

Guðjón Kr. Benediktsson

Þessi maður er húsa­smíða­meistari og gjör­sam­lega hokinn af reynslu. Hann er 79 ára gamall og hvergi nærri hættur. Þegar kemur upp vanda­mál á heimilinu er hann yfir­leitt búinn að gera við það um leið. Nú í sumar skiptum við um þak á bíl­skúrnum heima og gaf hann ekkert eftir. 19 ára gamall byggði hann yfir sig íbúð í svo­kölluðu sam­vinnu­fé­lagi þar sem unnið var næstum allan sólar­hringinn. Pabbi minn er að mínu mati harðasti iðnaðar­maður landsins, ekki síst vegna þess hversu hóg­vær hann er og alltaf til­búinn í sjálf­boða­vinnu.

Freyr Ingi Björnsson

Það er grjóthart að þvo glugga. Allavega ef glugginn er hátt uppi. Svo vinnur Freyr líka í actual grjóti og tryggir að fólk verði ekki undir grjóthruni. Sigmenn eru vanfundnir iðnaðarmenn.

Sigþór 'Sissi klikk'

Þessi er allt í öllu. Hann er standard rafvirki en þarna er hann að syna járnamönnum hvernig a að vinna.

Snorri Hinriksson

Snorri er ekki einn af þeim sem græðir á daginn og grillar á kvöldin, heldur er fagmennskan og sanngirnin mikil. Maður sem segir "æ, það tekur því ekki að búa til reikning", það er harður maður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.