Madrídingar skoruðu sjö í bikarnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. október 2016 22:30 Marco Asensio fagnar fyrra marki sínu í kvöld. vísir/getty
Óhætt er að fullyrða að Real Madrid er komið áfram í 16 liða úrslit spænska Konungsbikarsins þrátt fyrir að það eigi eftir seinni leikinn gegn C-deildarliðinu Cultural y Deportiva Leonesa. Lærisveinar Zinedine Zidane unnu sex marka sigur á útivelli í fyrri leik liðanna í kvöld, 7-1, og getur þjálfarinn því allt eins sent búningastjórann til leiks á Bernabéu um helgina í seinni leikinn. Marco Asensio skoraði tvö mörk í leiknum líkt og Álvaro Norata en Nacho og Mariano Díaz skoruðu sitthvort markið. Fyrsta mark Evrópumeistaranna var sjálfsmark hjá leikmanni Cultural. Real Madrid komst í 6-0 áður en Benja, leikmaður Cultural, minnkaði muninn í 6-1 og hélt draumum heimamanna á lífi. Þeir dóu endanlega þegar Díaz setti sjöunda markið á annarri mínútu í uppbótartíma. Madrídingar hafa átt það til að lenda í vandræðum gegn neðrideildarliðum í bikarnum en sú var ekki raunin í kvöld. Liðið mætti til leiks með leikmenn á borð við Pepe, Daniolo, Toni Kroos, James Rodríguez og Isco og vann stórsigur.
Spænski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Sjá meira