Telja framleiðendurnir að það hafi verið ómögulegt að hunsa áhrif Brexit á breskt þjóðfélag í leiknum sjálfum og tóku þeir því ákvörðun að láta Brexit verða að raunveruleika. Leikurinn reyni að endurspegla knattspyrnuheiminn og því hafi ekki verið hægt að láta eins og Brexit hafi ekki gerst.
Miles Jacobson, yfirmaður Sports Interactive, sem framleiðir leikinn segir að framleiðendurnir hafi velt því fyrir sér að láta Brexit gerast á einn ákveðinn hátt fyrir alla spilara leiksins. Þeim hafi þó ekki fundist það rétt og því hafi þeir ákveðið að búa til nokkra mismunandi möguleika.
#FM17 | The various scenarios of #Brexit will be simulated in Football Manager 2017 https://t.co/qOWoDc0wUy pic.twitter.com/g3t8o8KrSg
— Football Manager (@FootballManager) October 18, 2016
Mun þetta hafa mikil áhrif á þá sem vilja spila með bresk lið en fari allt á versta veg munu leikmenn leiksins utan Bretlands þurfa á atvinnuleyfi til þess að spila með liðum á Bretlandi. Önnur útgáfa líkir eftir svoköllluðu „mjúku“ Brexit þar sem dregið er úr áhrifum Brexit. Það er því ljóst að um talsverða breytingu er að ræða en Football Manager er einn af vinsælustu tölvuleikjum heims og er útgáfunnar beðið með eftirvæntingu hvert ár.
Stutt er í að leikurinn komi út en hér að neðan má sjá myndband þar sem allar helstu nýjungar leiksins eru kynntar.