Þór Þorlákshöfn meistari meistaranna í fyrsta sinn Kristinn Páll Teitsson skrifar 2. október 2016 21:15 Þórsarar taka á móti sigurverðlaununum í kvöld. Vísir/Anton
Þór Þorlákshöfn er meistari meistaranna í körfubolta í karlaflokki í fyrsta skiptið eftir 74-69 sigur á KR í DHL-höllinni í kvöld í Meistarakeppni KKÍ. Var þetta endurtekning frá bikarúrslitaleiknum í Laugardal þar sem KR-ingar höfðu betur en KR saknaði Jóns Arnórs Stefánssonar og Pavels Ermolinskij í kvöld. Liðin skiptust á forskotinu framan af í fyrsta leikhluta en Þórsarar náðu forskotinu rétt fyrir lokin og leiddu 18-15 að fyrsta leikhluta loknum. KR-ingar minnkuðu muninn niður í eitt stig í upphafi annars leikhluta en Þórsarar náðu þá aftur tökum á leiknum og náðu átta stiga forskoti rétt fyrir lok fyrri hálfleiks 38-30. Þórsarar svöruðu af krafti í upphafi seinni hálfleiks eftir fjögur stig KR-inga í röð með 11-2 áhlaupi en KR-ingar svöruðu um hæl með 13-2 áhlaupi og minnkuðu muninn í sex stig fyrir lokaleikhlutann. KR-ingar náðu að minnka muninn niður í eitt stig í upphafi fjórða leikhluta en lengra komust þeir ekki. Þórsarar settu í gír með 11-3 kafla sem reyndist of stórt bil fyrir KR til að brúa á lokamínútunum. Tobin Carberry fór á kostum með 28 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar í liði Þórs en Maciej Stanislav Baginski kom næstur með 22 stig. Í liði KR var það Brynjar Þór Björnsson sem var stigahæstur með 21 stig, 6 stoðsendingar og 6 fráköst en Sigurður Þorvaldsson var með 19 stig.
Dominos-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Sjá meira