Fótbolti

U19 úr leik á EM

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Þorvaldur Örlygsson þjálfar U19 ára landslið karla
Þorvaldur Örlygsson þjálfar U19 ára landslið karla vísir/stefán
Íslenska U19 ára landslið karla tapaði í dag 2-1 fyrir Tyrkland í undakeppni Evrópumeistaramótsins. Því er ljóst að liðið kemst ekki í milliriðla.

Tyrkland komst yfir á 10. mínútu leiksins en Axel Óskar Andrésson jafnaði metin á 69. mínútu. Átta mínútum fyrir leikslok komst Tyrkland yfir á ný og tryggði sér sigurinn.

Ísland tapaði fyrsta leiknum í riðlinum gegn Úkraínu 2-0 en tvö lið komast áfram í milliriðla. Ísland er því án stiga eftir tvo leiki en Úkraína er komið áfram með fullt hús stiga.

Tyrkland og Lettland gerðu jafntefli í fyrstu umferðinni en Ísland mætir Lettlandi í þriðja leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×