Þá er júnímánuður á enda og nýjar tölur frá Landssambandi Veiðifélaga sýna svo ekki verður um villst að um frábæran mánuð var að ræða:
Árnar hafa heilt yfir allt landið verið að skila afbragðs veiði en sú á sem líklega átti seinni part júní skuldlaust voru Rangárnar en Eystri Rangá er komin í 500 laxa en þar hefur eingöngu verið veitt í klak sem nú er lokið og ástundun við ánna langt frá því að vera mikil. Áin hefur verið í nokkra daga hvíld fyrir formlegri opnun sem er á morgun. Ytri Rangá er komin í 477 laxa en á sama tíma í fyrra var veiðin í 107 löxum en það ár endaði sem kunnugt er 8803 löxum. Stóri straumurinn í byrjun júlí er væntanlegur og það verður fróðlegt að sjá hverju hann skilar í árnar en ef við gefum okkur það að heimtur á eins árs laxi verði eitthvað í takt við þær góðu göngur á tveggja ára laxi sem veiðimenn hafa verið vitni að má alveg reikna með því að annað gott veiðisumar sé í vændum.
Topp 10 listinn frá Landssambandi Veiðifélaga er hér að neðan en listann í heild sinni má finna á www.angling.is
Blanda 762
Eystri-Rangá 500
Ytri-Rangá 477
Þverá + Kjarará 461
Norðurá 450
Haffjarðará 322
Miðfjarðará 292
Langá 207
Vatnsdalsá 148
Elliðaárnar. 128
Blanda aflahæst laxveiðiánna með 762 laxa
