Lífið

Bein útsending: Nýtt lag Sigur Rósar hringinn í kringum landið

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Nýtt lag Sigur Rósar, Óveður, verður leikið í ýmsum tilbrigðum í sólarhringsferð um hringveginn. Ferðalagið hefst á slaginu níu í kvöld og verður sýnt beint frá því á Youtube.

Lagið er hið fyrsta sem áhorfendur sveitarinnar fá að heyra frá því fyrir rúmum þremur árum en þá kom platan Kveikur út. Lagið hefur verið leikið á tónleikum á ferð sveitarinnar um heiminn en hljóðversútgáfan hefur enn ekki litið dagsins ljós. Útgáfan sem verður leikin næsta sólarhringinn er nokkuð óvenjuleg en smáforrit verður brúkað til að endurraða því í sífellu.

Enn hefur ekki verið gefið út hvort ný plata sé á leiðinni en það verður að teljast líklegt. Sú yrði áttunda í röðinni.

Hringferðin hefur hlotið nafnið Route One en það er unnið í samstarfi með RÚV. Hún er hægvarp stofnunarinnar þetta árið en í fyrra var riðið á vaðið með því að sýna frá sauðburði í sólarhring undir nafninu Beint frá burði.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.