Veiði

38 laxar á land í fyrsta hollinu í Hítará

Karl Lúðvíksson skrifar
Langidráttur í Hítará
Langidráttur í Hítará Mynd: SVFR
Laxveiðiárnar opna nú hver af annari og það er óhætt að segja að veiðin er ekkert annað en frábær í ánum.

Meðal þeirra sem veiði er hafin í er Hítará en okkur voru að berast frá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur um opnunina í ánni.  Hollið sem byrjaði veiðar landaði 38 löxum sem er besta opnun í Hítará fyrr og síðar.  Laxarnir fengust víða en eins og venjulega var mesta lífið við veiðihúsið í Kverkinni og á Breiðunni en laxar fengust líka í Grettisbæli sem er eins og veiðimenn þekkja mjög ofarlega í ánni.

Lax sást annars víða og eru kunnugir menn við ánna allir sammála því að staðan núna sé eins og vænta mætti í ánni um miðjan júlí.  Stórlaxahlutfallið er sem stendur mjög hátt eins og annars staðar á landinu á þessu sumri sem stefnir í að verða eitt það einkennilegasta í áratugi.  Önnur eins stórlaxaopnun á vesturlandi hefur ekki sést mjög lengi ef þá nokkurn tímann.  Það að allar árnar skuli vera með um og yfir 50% stórlaxahlutfall og sumar mun hærra er ótrúleg staðreynd.  Staðan í flestum ánum er eins og rétt fyrir mitt sumar á venjulegu ári.  Ofan á þetta þá eru smálaxagöngurnar að mæta eða ættu að vera mæta þessa dagana og ef þær verða í lagi er líklegt að þetta sumar slái einhver met.






×