Lífið

Leikurinn fer 2-1 fyrir okkur

Sæunn Gísladóttir skrifar
Fjölnir Þorgeirsson segir þrítugsafmælið sitt hafa staðið upp úr.
Fjölnir Þorgeirsson segir þrítugsafmælið sitt hafa staðið upp úr. Vísir/GVA
„Maður hefur ekki verið ógurlega mikið afmælisbarn, ég er meira afmælisbarn fyrir strákana mína, það er meira stuð,“ segir Fjölnir Þorgeirsson, sem fagnar fjörutíu og fimm ára afmæli sínu í dag. „Afmælisgjöfin er að vera á lífi fjörutíu og fimm ára og vera þakklátur fyrir það.“

Fjölnir ætlar að halda upp á afmælið með því að horfa á leikinn heima ásamt nánustu fjölskyldumeðlimum sínum. „Ég ætla ekki út á leikinn af því að ég er að fara á landsmót hestamanna, annars hefði ég farið. Þetta fer 2-1 fyrir Ísland. Það verður náttúrulega frábært. Við nánasta fjölskyldan borðum svo góðan mat og fögnum sigri Íslands þegar hann er kominn í höfn,“ segir Fjölnir.

Fjölnir hefur tröllatrú á strákunum okkar. „Við munum ná 2-0 svo munu þeir fækka um einn. Eiður Smári mun setja eitt mark,“ segir Fjölnir.

„Ég missti af leiknum síðast, þannig að ég lifi af þó ég missi af einhverjum leik en þetta er auðvitað frábært afrek, og auð­vitað geðveikt ef við náum að komast í átta liða úrslit. Við erum Íslendingar, þess vegna náum við þessum árangri í öllu sem við gerum, af því að við erum með Íslendingablóð, punktur,“ segir Fjölnir.

Þegar hann lítur yfir farinn veg segir Fjölnir þrítugsafmæli sitt standa upp úr meðal afmælisdaga. „Þrítugsafmælið mitt var alvöru afmæli, ég ætla ekki að fara nánar út í það, það var alvöru veisla og mega stuð. Ég hugsa að flest allir sem fóru í það muni eftir því,“ segir Fjölnir.

Þegar hann lítur til framtíðar segir Fjölnir mottóið sitt vera að vera kominn í aðeins betra form á fimmtugsafmælinu en Ívar Guðmundsson. „Ívar var í flottasta formi sem menn geta verið í og ég ætla að vera með aðeins minni fituprósentu en hann, en það eru nokkur kíló í það,“ segir Fjölnir og hlær.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 27. júní






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.