Gefur hæfileikaríkum konum tækifæri Stefán Þór Hjartarson skrifar 16. júní 2016 09:00 Hildur gefur út hressan sumarsmell sem fær örugglega að hljóma yfir nokkur sólböð í sumar. Það má sjá glitta í bolinn sem listakonan Sunna Ben hannaði fyrir Hildi. Vísir/Hanna „
Myndbandið er eiginlega eins og nútímaútgáfa af Palli var einn í heiminum, nema nú er Palli fullorðin glamúrkona sem lifir mjög hátt. Við skyggnumst inn í mjög glæsilegt líf manneskju sem utan frá virðist lifa fullkomnu lífi, en undir niðri er hún bara ein og einmana. Hún virðist alltaf vera að bíða eftir einhverjum sem kemur ekki. Við vorum að nálgast þetta út frá því sjónarhorni hvað fólk er duglegt að láta líf sitt líta miklu betur út en það í alvöru er. En ég vil ekki segja hvernig þetta endar - það er twist!“ segir Hildur Kristín Stefánsdóttir sem sendir frá sér sitt annað lag og myndband sem sólótónlistarkona, en það er lagið Bumpy road.Hvar er myndbandið tekið upp? „Við fengum lánað ótrúlegt hús í Keflavík sem margir þekkja sem kastalahúsið. Við sáum það bara á AirBnB og urðum alveg heillaðar. Eigendurnir voru svo elskulegir að lána okkur húsið og það kom ótrúlega vel út.“Hvaða fólk er með þér í að gera myndbandið? „Ég fékk einvalalið hæfileikaríkra kvenna til að gera myndbandið. Leikstjóri myndbandsins er Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir og Birta Rán Björgvinsdóttir sá um myndatöku, klippingu og eftirvinnslu. Svo sáu góðar vinkour mínar um förðun, hár og stíliseringu og ég er ótrúlega sátt við útkomuna. Allt myndbandið er unnið af konum og mér finnst skemmtilegt að vekja athygli á því að hið sama var uppi á teningnum í síðasta myndbandi. Eins og tónlistarheimurinn er kvikmyndaiðnaðurinn líka frekar karllægur og mér finnst mikilvægt að taka þátt í að breyta því og gefa hæfileikaríkum konum fleiri tækfæri.“Það er mikill glamúr í gangi í myndbandinu hennar Hildar.Mynd/Birta Rán BjörgvinsdóttirHvernig er svo lagið, er þetta hress smellur eins og I‘ll walk with you eða ertu kannski komin yfir í ballöðurnar? „Bumpy road er hress smellur en með fallegum og hvetjandi boðskap. Ég samdi lagið sem einhvers konar pepp til mín þegar ég var á erfiðum stað. Nafnið á laginu vísar í holóttan veg sem er samlíking fyrir lífið sjálft. Lífið er holóttur vegur, maður fer alltaf upp og niður, kannski einmitt þegar maður býst ekki við því, en eina leiðin til að halda áfram er að að fara aftur upp. Halldór Eldjárn, sem margir þekkja úr hljómsveitinni Sykur, pródúseraði lagið með mér og það var frábært að vinna með honum, ég held að við höfum klárlega náð því besta fram úr hvort öðru. Svo kom bróðir hans, Úlfur Eldjárn, og spilaði á saxófón sem setti ótrúlega flottan blæ á lagið.“Ekki er allt sem sýnist í glyskenndu lífi sumra - þannig má kannski útleggja boðskapinn í myndbandinu við Bumpy road.Mynd/Birta Rán BjörgvinsdóttirHvað er svo fram undan? „Sumarið verður fullt af skemmtilegum tónleikum hjá mér og ég get ekki beðið eftir að fá að spila lögin mín fyrir sem flesta. I'll walk with you fékk svo frábærar viðtökur að það er ótrúlega gaman að fylgja því eftir. Ég er búin að vera mjög dugleg að vinna í tónlistinni síðasta hálfa árið þannig að ég er komin langleiðina með EP plötu, sem er næsta stóra markmið hjá mér. Ég stefni á að gefa hana út með haustinu, sem undirbúning fyrir Iceland Airwaves og veturinn. Ég ákvað að gera eitthvað meira úr útgáfunni á Bumpy road og frumsýna í leiðinni nýja línu af Hildar-vörum. Ég fékk góðvinkonu mína Sunnu Ben, myndlistarkonu og DJ, til að hanna fyrir mig myndskreytingu og lét svo prenta stuttermaboli, derhúfur og kaffibolla. Mér fannst mikilvægt að hafa eina vöru sem fólk hefur enga afsökun fyrir að kaupa ekki. Það nota ekkert allir hvíta boli eða derhúfur en það nota allir bolla! Ég er ótrúlega ánægð með útkomuna og er alveg alvarlega að íhuga að brjóta regluna að listamaður megi ekki ganga í eigin hljómsveitarbolum!“Á Facebook-síðu Hildar má svo finna frekari upplýsingar um Hildar-vörurnar.
Airwaves Tónlist Mest lesið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fjörðurinn og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Fleiri fréttir Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Ástarsorgin átakanleg en gjöful Joey Christ, Dóri DNA, og 7Berg í upphitun fyrir Yasiin Bey Kynþokkafullir með fortíðarþrá Stuðpinnar skáluðu í innsetningunni Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana DJ Krush á Extreme Chill Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Ásgeir heldur stórtónleika í Hörpu í ágúst Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Námið ekki eins krefjandi og á Tene Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Forrest Gump rokksins allur Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Sjá meira