FSu-strákarnir streyma í Stykkishólm Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2016 14:30 Gunnar Svanlaugsson tekur hér vel á móti nýjum leikmönnum. Mynd/Fésbókarsíða Snæfells
Snæfell er byrjað að styrkja lið sitt fyrir átökin í Dominos-deild karla í körfubolta og Hólmarar sækja nýju mennina sína á Selfoss. Tveir leikmenn sem féllu með FSu-liðinu í vor ætla að vera áfram í Dominos-deildinni og hafa ákveðið að skipta yfir í Snæfell. Þetta eru miðherjinn Maciej Klimaszewski og skotbakvörðurinn Geir Elías Úlfur Helgason. Maciej Klimaszewski og Geir Elías Úlfur Helgason voru ekki í stórum hlutverkum hjá FSu á síðasta tímabili en þeir fengu báðir dýrmæta reynslu af Dominos-deildinni. „Maciej Klimaszewski skrifaði í dag undir eins árs samning við Snæfell en þessi hávaxni leikmaður mun fá ærið verkefni næsta vetur að fylla skarð Stefáns Torfasonar í teig Snæfellinga. Maciej er uppalinn á Hvolsvelli og lék með '95 landsliði Íslands og er efnilegur leikmaður hérna á ferðinni sem lék síðustu ár með FSu. Maciej skoraði 2.4 stig að meðaltali í leik fyrir FSu á síðustu leiktíð á rúmum 8 mínútum í leik," segir um komu Maciej á fésbókarsíðu Snæfells. „Geir Elías Úlfur Helgason skrifaði undir eins árs samning við Snæfell í dag, en þessi spræki bakvörður lék með FSu á síðustu leiktíð þar sem hann var með 2.4 stig að meðaltali í leik á 10 mínútum í leik. Geir er uppalinn hjá Hrunamönnum á Flúðum en hefur leikið með FSu síðustu ár. Geir er örvhentur bakvörður sem hefur mikinn metnað og spennandi að fylgjast með honum á næsta tímabili," segir um Geir á fésbókarsíðu Snæfells.
Dominos-deild karla Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Fleiri fréttir Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Sjá meira