Myndbandið skartar söngvörunum Haraldi og Unnsteini Manúel Stefánsson í aðalhlutverkum en kærleikur þeirra til hvors annars hreinlega lekur af skjánum. Myndbandið sýnir þá félaga dansa og hanga, innandyra og utan á Eyrabakka. Þetta gæti líklegast verið eitt fallegasta „bró-manns“ vídjó íslenskrar tónlistarsögu.
„Þetta er dálítið eins og trailer af einhverri feel-good mynd,“ segir Unnsteinn Manúel. „Þegar við komum fyrst til Íslands ég og Logi bróðir, þá vorum við í sumarbústað á Eyrarbakka í sumarfrí. Þannig að við eigum góðar minningar þaðan.“
Magnús Leifsson leikstýrði myndbandinu en ítarlegt viðtal við hann um gerð þess má lesa í dag í Fréttablaðinu.

Lagið Skin er það fyrsta sem sveitin sleppur lausu af væntanlegri plötu sem kemur til með að heita Scandinavian Pain eftir listaverki sem Ragnar Kjartansson gerði.
„Platan er búin að vera lengi á leiðinni. Fyrir utan hvað þessi titill hljómar fallega þá tengjum við hugmyndafræðina við verkið hans Ragga. Að vera skandinavískir listamenn sem geta margir ekki gefið neitt frá sér nema að þurfa að ganga í gegnum smá erfiðleika fyrst.“
Scandinavian Pain verður sjö til átta laga og mun hugsanlega koma út í takmörkuðu upplagi hvað áþreifanleg eintök varðar. Bæði á vínyl og á geisladisk.
Sveitin er ekki lengur á samning hjá plötuútgáfunni Record Records og ætlar að sjá um sín útgáfumál sjálf. Ekki hefur verið frágengið hvernig að því verður staðið en líklegast verða framleitt eintök eftir pöntunum, hvort sem það verður fjármagnað í gegnum fjársöfnun á netinu eða með öðrum hætti. Unnsteinn segir það ekki áhersluatriði að gefa út plötuna í áþreifanlegu formi heldur frekar á netinu. Hann segir að það sé þó mikilvægt að finna leið til þess að fólk geti hlustað á plötuna í bílunum sínum.
Ef það var einhver tregi eða erfiðleikar tengdir fæðingu lagsins Skin, þá er það svo sannarlega ekki að heyra á laginu, sem er afar dansvænt og hressandi.