Sópurinn á lofti hjá Spurs og Cavs | Þristaregn hjá Golden State Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. apríl 2016 07:15
San Antonio Spurs varð fyrsta liðið til að komast í undanúrslit vesturdeildarinnar í NBA-körfuboltanum í nótt þegar liðið gekk frá Memphis Grizzlies á útivelli, 116-96, en Spurs vann einvígið 4-0. Kawhi Leonard skoraði 21 stig fyrir San Antonio og Tony Parker og LaMarcus Aldridge bættu við 16 og 15 stigum fyrir Spurs en meiðslum hrjáð Memphis-liðið átti aldrei möguleika í rimmunni. Cleveland Cavaliers var einnig með sópinn á lofti í rimmu sinni gegn Detroit Pistons en LeBron James og félagar unnu fjórða leikinn í nótt, 100-98, og einvígið í fjórum leikjum. Kyrie Irving fór á kostum fyrir ríkjandi austurdeildarmeistarana og skoraði 31 stig en LeBron James skoraði 22 stig, tók ellefu fráköst og gaf sex stoðsendingar.Golden State Warriors heldur áfram að slá allskonar met en í nótt komst liðið í 3-1 í einvígi sínu gegn Houston Rockets með 121-94 sigri í Houston.Stephen Curry meiddist í öðrum leikhluta og sneri ekki aftur til leiks. Golden State setti met í þriggja stiga körfum í úrslitakeppninni þrátt fyrir að besta skytta deildarinnar, Curry, væri ekki með. Liðið setti samtals 21 þriggja stiga körfu í leiknum. Klay Thompson skoraði sjö þrista, þar af fjóra í þriðja leikhluta þar sem Golden State gekk endanlega frá leiknum og stakk Houston af. Meistararnir skoruðu 41 stig í þriðja leikhluta. Thompson var stigahæstur með 23 stig en hann hitti úr sjö af ellefu þriggja stiga skotum sínum. Andre Igoudala kom sterkur inn af bekknum en hann skoraði 22 stig og var með ótrúlega hittni. Hann setti niður þrjú af fjórum þriggja stiga skotum sínum og níu af ellefu skotum í heildina. Í hinum leik kvöldsins átti Celtics flottan leik gegn Atlanta Hawks og jafnaði einvígið í 2-2 með 104-95 sigri.41 stig í þriðja leikhluta án Curry:
NBA Mest lesið Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira