Frábær endasprettur Skallagríms og sæti í Domino's deildinni tryggt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2016 21:15 Jean Rony Cadet var með tröllutvennu í leiknum í kvöld. vísir/anton
Skallagrímur leikur í Domino's deild karla á næsta tímabili eftir eins árs fjarveru. Skallarnir unnu Fjölni, 75-91, í oddaleik um sæti í efstu deild í Dalhúsum í kvöld. Fjölnir komst í 2-1 í einvíginu en Skallagrímur vann síðustu tvo leikina og tryggði sér sigurinn í einvíginu. Fjölnir leiddi með einu stigi, 59-58, fyrir 4. leikhlutann þar sem Borgnesingar voru miklu sterkari aðilinn. Grafarvogsliðið byrjaði 4. leikhlutann reyndar ágætlega og þegar rúmar sex mínútur voru til leiksloka var staðan 67-62, Fjölni í vil. Þá fóru Borgnesingar í gang, skoruðu 20 stig gegn aðeins þremur og náðu 12 stiga forystu, 70-82. Á endanum munaði 16 stigum á liðunum, 75-91, og það verður því Skallagrímur sem fylgir Þór Akureyri upp í Domino's deildina. Kristófer Gíslason var stigahæstur í liði Skallagríms með 24 stig og þá átti Jean Rony Cadet stórleik, skoraði 22 stig, tók 22 fráköst, gaf sex stoðsendingar og varði fimm skot. Collin Pryor skoraði mest í liði Fjölnis, eða 23 stig, auk þess sem hann tók 12 fráköst.Fjölnir-Skallagrímur 75-91 (19-19, 22-21, 18-18, 16-33)Fjölnir: Collin Anthony Pryor 23/12 fráköst, Garðar Sveinbjörnsson 14/5 fráköst/5 stoðsendingar, Róbert Sigurðsson 13/5 fráköst/9 stoðsendingar, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 8, Egill Egilsson 6/8 fráköst, Bergþór Ægir Ríkharðsson 5, Sindri Már Kárason 4/5 fráköst, Þorgeir Freyr Gíslason 2, Alexander Þór Hafþórsson 0, Smári Hrafnsson 0, Valur Sigurðsson 0, Árni Elmar Hrafnsson 0.Skallagrímur: Kristófer Gíslason 24/6 fráköst, Jean Rony Cadet 22/22 fráköst/6 stoðsendingar/5 varin skot, Sigtryggur Arnar Björnsson 14/4 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 11/6 fráköst, Hamid Dicko 7/5 stoðsendingar, Hjalti Ásberg Þorleifsson 5, Kristján Örn Ómarsson 5, Davíð Ásgeirsson 3, Bjarni Guðmann Jónson 0, Þorsteinn Þórarinsson 0, Davíð Guðmundsson 0, Guðbjartur Máni Gíslason 0.
Dominos-deild karla Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Sjá meira