Klikkaði á öllum skotunum sínum en var samt valinn maður leiksins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2016 14:00 Pavel Ermolinskij. Vísir/Anton
Leikmenn geta verið sínu liði gríðarlega mikilvægir þrátt fyrir að skora lítið og gott dæmi um það er frammistaða Pavel Ermolinskij á móti Njarðvík í gær í þriðja leik KR og Njarðvíkur í undanúrslitum Domino´s deildar karla. Karfan.is hefur valið mann leiksins, svokallaðan Lykilmann leikjanna, eftir alla leikina í úrslitakeppnum Domino´s deildanna og í gær var komið að Pavel að vera valinn. Pavel Ermolinskij skoraði bara tvö stig á þeim rúmu 34 mínútum sem hann spilaði en hann klikkaði á öllum fjórum skotum sínum utan af velli og það voru fimm leikmenn KR-liðsins sem skoruðu níu stigum eða meira en hann í gær. Pavel sýndi það og sannaði að mikilvægi hans liggur á mörgum sviðum og hann þarf alls ekki að skora til að KR-liðinu gangi vel. Þrátt fyrir að skora bara tvö stig í leiknum þá var Pavel framlagshæstur í KR-liðinu ásamt Helga Má Magnússyni. Pavel var nefnilega með 14 fráköst, 11 stoðsendingar, 8 fiskaðar villur og 3 stolna bolta í leiknum og KR-liðið vann með 21 stigi þegar hann var inná vellinum. „Pavel átti erfitt uppdráttar í leiknum hvað stigaskor varðar en að öðru leyti stýrði hann sóknarleik KR-ingar með stakri prýði og var hæstur í framlagi ásamt Helga Má með 19 stig," segir í rökstuðningi Karfan.is fyrir valinu á Pavel. KR komst í 2-1 með þessum sigurleik á Njarðvík og vantar því aðeins einn sigur til viðbótar til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu þriðja árið í röð. Fjórði leikur liðanna fer fram í Njarðvík á miðvikudagskvöldið.
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira