Óvíst hvort að Pavel geti verið með í oddaleiknum á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2016 12:23 Pavel Ermolinskij. Vísir/Anton
Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi KR-liðsins, missir mögulega af oddaleik KR og Njarðvíkur í undanúrslitum Domino´s deildar karla á morgun. Íslandsmeistarar KR eru komnir í oddaleik á móti Njarðvík annað árið í röð en það kemur eflaust ekki í ljós fyrr en stuttu fyrir leik hvernig lið KR-inga verður skipað í leiknum á morgun. KR-ingar segja nefnilega frá því á heimasíðu sinni í dag að óvíst sé með þátttöku Pavels í leiknum mikilvæga á morgun. Pavel var hvergi sjáanlegur þegar fjórði leikur Njarðvíkur og KR hófst í Njarðvík í gær en fljótlega kom hann þó inn í salinn með umbúðir á kálfa. Pavel varð fyrir því óláni að fá tak í upphitun en það var síðan sameiginleg ákvörðun Pavels, Finns Freys þjálfara og Bjartmars sjúkraþjálfara að hvíla hann í leiknum. Björn Kristjánsson kom inn í byrjunarliðið fyrir Pavel en þessi óvænta breyting rétt fyrir leik stuðaði greinilega KR-inga sem lentu 14-0 og 18-3 undir í byrjun leiks. KR vann sig samt inn í leikinn og komst mest 9 stigum yfir en Njarðvíkingar sýndu mikinn karakter í lokin og tryggðu sér sigur og þar með oddaleik annað kvöld. „Pavel verður í sjúkraþjálfun í dag og á morgun sem vonandi gerir hann leikfæran annað kvöld en það er enn óvíst. Þegar á móti blæs stíga aðrir upp og það þurfa hreinlega allir að eiga sinn besta leik til að tryggja KR sæti í úrslitum gegn Haukum," segir í fréttinni um Pavel á heimasíðu KR. Pavel Ermolinskij er með 8,0 stig, 11,7 fráköst og 8,5 stoðsendingar að meðaltali í leik í úrslitakeppninni en KR-liðið hefur unnið þær 213 mínútur sem hann hefur spilað með 82 stigum.
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira