Tíu ár síðan Njarðvík vann í Vesturbænum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2016 06:30 Haukur Helgi Pálsson og Brynjar Þór Björnsson eigast við. vísir/anton
Annað árið í röð mætast KR og Njarðvík í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvígi Domino´s deildar karla í körfubolta og líkt og í fyrra fer leikurinn fram á föstudagskvöldi í DHL-höllinni. Leikur kvöldsins hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Suma er eflaust enn að dreyma oddaleikinn í fyrra sem KR vann eftir tvær framlengingar þrátt fyrir 52 stig frá Stefan Bonneau. Ætli Njarðvíkingar í lokaúrslitin í fyrsta sinn í níu ár þá þurfa þeir að gera það sem engu liði hefur tekist í þrjú ár og þeim sjálfum hefur ekki tekist í heilan áratug. KR-ingar hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn undanfarin tvö ár og töpuðu síðast seríu í úrslitakeppninni á móti Grindavík fyrir þremur árum. Njarðvíkingar hafa jafnað einvígið í tvígang með endurkomusigrum í Ljónagryfjunni en þeir hafa tapað báðum leikjum sínum í DHL-höllinni. Þetta er í raun að spilast eins og í fyrra sem ætti að lofa góðu fyrir leik kvöldsins sem var frábær skemmtun. Það þarf að fara alla leið til 3. apríl 2006 til að finna Njarðvíkursigur í DHL-höllinni en þá slógu Njarðvíkingar KR út úr undanúrslitum úrslitakeppninnar á leið sinni að þrettánda og síðasta Íslandsmeistaratitli sínum. Síðan þetta mánudagskvöld fyrir tíu árum hafa Njarðvíkingar tapað 19 leikjum í röð í Vesturbænum. Njarðvíkingar töpuðu í tvíframlengdum fyrsta leik í þessu undanúrslitaeinvígi en áttu síðan fá svör í 18 stiga tapi í þriðja leiknum. Þetta voru því mjög ólíkir leikir sem hafa farið fram í DHL-höllinni í þessu einvígi liðanna
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira