Lífið

Kastað upp í matvöruverslun

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Djúskúr

Nú er ein kollega minna orðin svoleiðis öskrandi æst og peppuð yfir komandi sumri. Í hádegismat um daginn rakti hún í löngu máli einhvern vikulangan djúskúr sem hún sagði hafa breytt lífi sínu fyrir nokkrum árum. Aðrir kollegar og samferðamenn eru sem stendur í ströngu nammibindindi eftir páskahátíðina miklu enda einn af fylgifiskum hennar sá að svitna súkkulaði eftir ótæpilega neyslu sælgætisins sem mótað er í kúlulaga dýraafurð. Fullt hús matar ef þið spyrjið mig.

Sjálf er ég orðin frekar peppuð yfir sumrinu en þó laus við það að æsa mig upp í einhverjar takmarkanir í mataræði og ætla alveg að láta þær vera. Ég held að mitt aðalmarkmið í sumar verði bara að hafa gaman sama í hvaða þyngd ég er. Ég er samt að reyna að safna mér fyrir íbúð þannig að ég hugsa að ég geri ekki neitt sem kostar pening.

Ég sleppi sjálfsagt ferðalögum alfarið, innanlands sem utan. Þau eru alltof dýr. Svo ætla ég að hola niður einhverjum fræjum í ker úti á svölum og borða bara uppskeruna. Þá slæ ég líka tvær flugur í einu höggi. Spara og gerist vegan. Það er víst ekki hægt að rækta kjöt af fræi. Ekki enn að minnsta kosti.

Ég fór nefnilega í matvöruverslun um daginn og keypti í matinn. Ég var nú ekkert að tríta mig með kavíar og foi gras en það var samt svo dýrt að ég kastaði næstum því upp þegar ég straujaði kortið.

Miðað við þær takmarkanir sem ég hef sett mér undanfarið í lifnaðarháttum og sparnaði sé ég fram á að eignast íbúð í ársbyrjun 2030. Ég er auðvitað þrælspennt og búin að búa til sér borð á Pinterest þar sem ég vista skilmerkilega óraunhæfar hugmyndir um ytra og innra byrði íbúðarinnar en miðað við kaupmátt minn þá sé ég fram á að enda í niðurgrafinni íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholtinu frekar heldur en þakíbúð með óendanlegri lofthæð og svölum.



via GIPHY

Facebook-leikir

Annars hef ég dáldið verið að uppgötva sjálfa mig upp á síðkastið. Ég er auðvitað sífellt að kynnast sjálfri mér betur enda í nánum samvistum við mig sjálfa velflesta tíma sólarhringsins. Síðast­liðnar vikur hef ég komið mér á óvart þar sem ég hef tvisvar sinnum á jafn mörgum vikum tekið þátt í leikjum á samskiptamiðlinum Facebook.

Þið kannist sjálfsagt við þetta. Kvitta, deila og tagga einhvern sem þú vilt njóta vinningsins með.



Mér finnst nefnilega full langt síðan ég hef unnið nokkuð af viti. Síðast þegar ég vann stóra vinninginn var þegar endurvinnslustöðin Sorpa fagnaði 10 ára afmæli. Þá vann ég Playstation 2 tölvu og fullt af nammi sérmerktu fyrirtækinu. 

Svo birtist þessi ægilega fína mynd af mér í ársskýrslu fyrirtækisins og ef þið haldið að ég sé að ljúga þá getið þið bara slegið inn leitarorðin Gyða Lóa og Sorpa inn á Google. Ég var auðvitað rígmontin með þetta allt saman og er handviss um að nú sé minn tími kominn aftur.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.