Það hljómar eins og það sé nokkuð stórt skref að stökkva úr því að vera áhugamaður um bakstur og beint ofan í djúpu laugina í atvinnubrauðbakstri „Ég frétti af því að hann Ágúst Einþórsson (eigandi Brauð&co.) væri að opna þetta bakarí og ég hringdi beint í hann og sótti um starf, hann var alveg til í að fá mig í vinnu hjá sér.“

„Ég er alltaf að gera einhverja músík, maður er alltaf að henda í eitthvert deig,“ svarar Sigurður kíminn spurður að því hvort hann sé að vinna í einhverri tónlist þessa dagana. „Brauðdeigið er samt orðið stór partur af tilveru minni. Það er rosalega fínt að skipta svona um vettvang og einbeita sér aðeins að öðruvísi hlutum en tónlistinni tímabundið,“ segir Sigurður sem lætur baksturinn greinilega ekki aftra sér frá að skapa tónlist.
Brauð&co. er mörgum kærkomin viðbót í bakarísflóru miðbæjarins og fólk streymir þangað alls staðar að úr bænum. „Það var t.d. gjörsamlega fullt út úr dyrum alla páskana, það seldist allt saman upp rétt fyrir hádegi. Fólk er að koma hingað úr Kópavogi og Garðabæ og yfirgefa staðinn skælbrosandi,“ segir Sigurður hæstánægður með velgengnina.
Hjálmar spila í kvöld í Gamla bíói á styrktartónleikum Blás apríls, styrktarfélags barna með einhverfu. Þar koma þeir fram ásamt Júníusi Meyvant og hljómsveitinni Valdimar, kynnir verður Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Miðasala er í fullum gangi á Miði.is.