Teitur segir að Bonneau spili í Ljónagryfjunni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2016 12:07 Stefan Bonneau í leik með Njarðvík í fyrra. Vísir/Vilhelm
Stefan Bonneau spilar væntanlega sínar fyrstu mínútur í Domino´s deildinni eftir hásinarslit í kvöld þegar Njarðvík tekur á móti Stjörnunni í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum. Teitur Örlygsson, aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga staðfestir það í samtali við karfan.is í dag. „Oddur bað hann um smá hjálp og Stefan fannst gott að heyra það. Ég geri ráð fyrir því að hann hvíli Odd í kvöld þegar þurfa þykir," sagði Teitur Örlygsson í samtali við karfan.is. Stefan Bonneau hefur setið á bekknum í tveimur síðustu leikjum án þess að koma við sögu. Bonneau spilaði síðast í Domino´s deildinni 17. apríl í fyrra þegar hann skoraði 52 stig í tap í tvíframlengdum leik á móti verðandi Íslandsmeisturum KR í DHL-höllinni. Bonneau tók 39 skot í þeim leik en í dag er hann rétt að byrja eftir mjög erfið meiðsli. Njarðvík vann fyrsta leik liðanna 65-62 í Ásgarði í Garðabæ á föstudagskvöldið. Oddur Rúnar Kristjánsson spilaði í 39 mínútur og 46 sekúndur í leiknum og var með 8 stig og 4 stoðsendingar. Leikur Njarðvíkur og Stjörnunnar hefst klukkan 19.15 í Ljónagryfjunni í Njarðvík en á sama tíma spila Þór og Haukar í Þorlákshöfn. Leikurinn í Þorlákshöfn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og báðir leikirnir verða síðan gerðir upp í Körfuboltakvöldinu sem verður sent út í beinni frá Þorlákshöfn strax eftir leikina. Þeir sem eru orðnir spenntir fyrir því að sjá Stefan Bonneau í fyrsta sinn í vetur geta skoðað nokkur eftirminnilega myndbönd frá síðasta tímabili hér fyrir neðan.
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira