Merkel: Um þrjú þúsund Írakar snúa aftur heim í hverjum mánuði Atli Ísleifsson skrifar 10. mars 2016 23:30 Angela Merkel hefur ítrekað látið hafa eftir sér að hælisleitendum í landinu komi til með að fækka. Vísir/AFP
Um þrjú þúsund Írakar snúa aftur frá Þýskalandi og heim til Íraks í hverjum mánuði og þeim fer fjölgandi. Angela Merkel Þýskalandskanslari lét orðin falla í ræðu í Baden-Württemberg en kosningar fara fram í þremur sambandslöndum á sunnudag. Sagði hún að sífellt fleiri Írakar snúi aftur til heimaslóðanna eftir því sem írakskar öryggissveitir hrekja fleiri vígamenn ISIS á brott. Þá kjósi margir að snúa heim þegar þeir geri sér grein fyrir að langan tíma gæti tekið að fá fjölskyldu og ástvini til sín í Þýskalandi. Merkel hefur ítrekað látið hafa eftir sér að hælisleitendum í landinu komi til með að fækka, en um 1,1 milljón hælisleitenda komu til Þýskalands á síðasta ári. Kristilegi demókrataflokkurinn, flokkur kanslarans, hefur verið undir miklum þrýstingi vegna óánægju stórs hluta þýsks almennings með stefnu stjórnvalda í málefnum flóttafólks. Skoðanakannanir benda til að hægriöfgaflokkurinn Alternativ für Deutschland muni hljóta allt að fimmtung atkvæða í kosningum sunnudagsins sem fram fara í Baden-Württemberg, Rínarlandi-Pfalz og Saxlandi-Anhalt. Þá benda kannanir til að í fyrsta sinn frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar verði kristilegir demókratar ekki stærsti flokkurinn í Baden-Württemberg.
Flóttamenn Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira