Miðasalan á Bræðsluna hefst á morgun Stefán Árni Pálsson skrifar 14. mars 2016 12:30 Oft frábær stemning á Bræðslunni. Mynd/Aðalsteinn Svan Hjelm
Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra hefur fest sig rækilega í sessi hjá þeim sem sækjast eftir góðri tónlist í fallegu og friðsælu umhverfi og á síðasta ári seldust miðar á hátíðina upp á einum degi. Miðasala á Bræðsluna hefst á morgnu klukkan kl. 10:00 á www.braedslan.is og á www.tix.is. Bræðslutónleikarnir fara svo fram laugardaginn 23. júlí. Mjög takmarkaður fjöldi miða er í boði og þeim verður ekki fjölgað. Bræðslan fer fram síðasta laugardag júlímánaðar ár hvert og hefur gert það síðan 2005. Bræðslan dregur nafn sitt af tónleikahúsinu, gömlu bárujárnshúsi sem áður var nýtt sem síldarbræðsla. Hún er skipulögð af heimamönnum og burtfluttum Borgfirðingum sem hafa það að markmiði að efla menningarlíf og þannig mannlíf Borgarfjarðar og Austurlands. Meðal þeirra sem komið hafa fram á Bræðslutónleikunum má nefna Emilíönu Torrini sem kom fram á fyrstu öðrum tónleikunum og aftur árið 2014, skosku sveitina Belle and Sebastian, Jónas Sigurðsson, Mammút, Ásgeir Trausta, Megas, John Grant, Eivör Pálsdóttir, Pál Óskar, KK og Ellen, Þursaflokkinn, Mugison, Damien Rice, Fjallabræður, Glen Hansard og Of Monsters and Men. Einstök náttúrufegurð, gestrisni heimamanna og frábær gestahópur hafa ásamt tónlist þessa frábæra listafólks skapað þægilega stemmingu fyrir fólk á öllum aldri. Dagskráin þetta árið er óvenju vegleg. Frá Írlandi kemur Gavin James, ungt söngvaskáld sem meðal annars hefur hitað upp fyrir Sam Smith og Ed Sheeran, frá Kanada kemur David Celia, sem m.a. hefur spilað með Emiliönu Torrini á tónleikum hennar í Kanada á síðasta ári og þá mun hin danska Tina Dickow koma fram í Bræðslunni ásamt Helga Jónssyni. Þarna er þó aldeilis ekki allt upptalið því að auk áðurnefndra koma þau Soffía Björg, KK band, Amaba Dama og Nýdönsk fram á Bræðslunni þetta árið. Ýmislegt fleira skemmtilegt verður í boði fyrir gesti s.s. ljósmyndasýning og ljósmyndasamkeppni í boði Canon. Síðustu ár hefur fjölbreytt dagskrá, skipulögð af ýmsum aðilum staðið í heila viku áður en sjálfir Bræðslutónleikarnir fara fram, auk þess sem fjöldi annarra tónleika fer fram á Borgarfirði yfir sumarið og þannig verður það einnig þetta árið.
Mest lesið Sex ára þegar hann var fyrst frelsissviptur Lífið Háleit markmið Katrínar: Sparar í mat og greiðir 10 milljónir inn á húsnæðislánið Lífið Pamela Bach-Hasselhof látin Lífið Svona er umhorfs hjá Höllu á Bessastöðum Lífið Fimm heillandi heimili í höfuðborginni Lífið „Fyrir mér snýst þetta ekki bara um að sækjast eftir kórónu“ Lífið Ungir Framsóknarmenn safna fyrir neyðarsjóð Ragnars Þórs Lífið Segir gott að elska Ara Lífið Fáðu að vita strax hvort þú hafir efni á draumaeigninni Lífið samstarf Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Fleiri fréttir Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira