Matur

Oreo osta­köku­browni­e að hætti Evu Lauf­eyjar

visir.is/evalaufey
Ostakökubrownie

Brownies uppskrift:

150 g smjör

250 g súkkulaði t.d. suðusúkkulaði

200 g sykur

2 stór egg

100 g KORNAX hveiti

1 tsk vanillusykur

2 msk kakó

6 - 8 Oreo kexkökur

Karamellufylling

700 g rjómaostur (1 1/2 askja frá MS)

2 msk rjómi

2 msk flórsykur

12 OREO kexkökur

Súkkulaðikrem ofan á:

250 g suðusúkkulaði

Aðferð:

Hitið ofninn í 170°C (blástur).

Bræðið smjör við vægan hita, saxið súkkulaðið og bætið því við smjörið og leyfið því að bráðna í smjörinu. Takið pottinn af hellunni og leyfið súkkulaðiblöndunni að kólna.

Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið vanillu, hveiti og kakó saman við og hrærið þar til deigið er silkimjúkt. Í lokin hellið þið súkkulaðiblöndunni við og blandið vel saman.

Hellið deiginu í pappírsklætt form (20x20), brjótið Oreo kökurnar eða setjið þær í heilu lagi ofan í deigið. Bakið við 170°C í 30 mínútur. Það er mjög mikilvægt að leyfa kökunni að kólna alveg í forminu. (best að setja hana í kæli)

Á meðan kakan er í kæli hrærið þið saman rjómaosti, rjóma og flórsykri. Það er gott að hafa rjómaostinn við stofuhita en þá er þægilegra að hræra hann. Þegar blandan verður létt saxið þið niður OREO kökur og blandið við með sleikju. Dreifið blöndunni yfir kalda brownies köku og inn í ísskáp á ný. Ostaköku blandan þarf að vera köld og stíf er súkkulaðikremið fer yfir.

Bræðið mjólkursúkkulaði yfir vatnsbaði og hellið yfir kökuna í lokin. Kælið og þegar súkkulaðið er orðið hart þá er kakan tilbúin, skerið hana í bita og berið strax fram.

Njótið vel. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.