James tók metið af Kobe í stjörnuleiknum í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. febrúar 2016 08:22 Það var létt yfir mönnum í Toronto í nótt. vísir/getty
Kobe Bryant lék sinn 18. og síðasta stjörnuleik í nótt þegar lið Vesturdeildarinnar bar sigurorð af liði Austurdeildarinnar, 196-173, í Toronto. Bryant, sem leggur skóna á hilluna eftir tímabilið, var með 10 stig í leiknum í nótt og skoraði því alls 290 stig í stjörnuleikjum á ferlinum. Bryant átti metið yfir flest stig í stjörnuleikjum en LeBron James hirti það af honum með því að skora 13 stig í leiknum í nótt. James er nú búinn að skora 291 stig í stjörnuleikjum, einu meira en Bryant. Þriðji á blaði er svo átrúnaðargoð Bryants, sjálfur Michael Jordan, en hann skoraði 262 stig í stjörnuleikjum á sínum tíma. Kevin Durant, leikmaður Oklahoma City Thunder, nálgast efstu menn en hann er kominn upp í 13. sætið á stigalistanum í stjörnuleikjum. Durant skoraði 23 stig í leiknum í nótt og hefur því gert 179 stig í stjörnuleikjum á ferlinum, jafn mörg og Boston-goðsögnin John Havlicek gerði á sínum tíma. Durant er bara 27 ára og ætti því að geta komist enn ofar á listann á næstu árum. Þótt ungur sé á Durant þó metið yfir flest stig að meðaltali í leik í stjörnuleikjum, eða 25,6 stig.Flest stig í stjörnuleikjum NBA: 1. LeBron James - 291 2. Kobe Bryant - 290 3. Michael Jordan - 262 4. Kareem Abdul-Jabbar - 251 5. Oscar Robertson - 246 6. Bob Pettit - 224 7. Julius Erving - 221 8. Elgin Baylor - 218 9. Shaquille O'Neal - 202 10. Wilt Chamberlain - 191
NBA Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Sjá meira