Brynjar Þór orðinn leikjahæstur í sögu KR Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. febrúar 2016 21:00 Brynjar Þór Björnsson með bikarinn um síðustu helgi. vísir/hanna
Brynjar Þór Björnsson, bakvörður Íslands- og bikarmeistara KR í körfubolta, er orðinn leikjahæstur í sögu vesturbæjarliðsins. Hann spilaði sinn 388. leik fyrir KR á móti Keflavík í DHL-höllinni í kvöld í toppslag Dominos-deildar karla. Brynjar jafnaði metið í bikarúrslitaleiknum síðastliðinn laugardag þar sem KR lagði Þór frá Þorlákshöfn og vann sinn fyrsta bikarmeistaratitil síðan 2011. Brynjar Þór er aðeins 27 ára gamall en er nú þegar fimmfaldur Íslandsmeistari og tvöfaldur bikarmeistari. Metið hirti Brynjar af KR-goðsögninni Kolbeini Pálssyni sem spilaði með KR frá 1962-1979. Kolbeinn er annar af tveimur körfuboltamönnum í sögunni sem hefur verið kjörinn íþróttamaður ársins. Brynjar Þór hélt upp á tímamótaleikinn með stórsigri á Keflavík í toppslagnum, en með sigrinum náði KR fjögurra stiga forskoti á Suðurnesjamenn og á deildarmeistaratitilinn vísan. Bakvörðurinn öflugi skoraði tólf stig, tók fjögur fráköst og gaf fimm stoðsendignar í leiknum. Hann hitti úr þremur af fimm skotum sínum í teignum og tveimur af fjórum þriggja stiga skotum sínum.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Keflavík 103-87 | KR-ingar sendu sterk skilaboð með stórsigri KR-ingar kafsigldu Keflvíkinga á upphafsmínútunum í 103-87 sigri í lokaleik 18. umferðar í Dominos-deild karla í kvöld. 19. febrúar 2016 22:15 Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Fleiri fréttir Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Keflavík 103-87 | KR-ingar sendu sterk skilaboð með stórsigri KR-ingar kafsigldu Keflvíkinga á upphafsmínútunum í 103-87 sigri í lokaleik 18. umferðar í Dominos-deild karla í kvöld. 19. febrúar 2016 22:15