Enn einn heimasigur Golden State | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. febrúar 2016 10:53 Curry og félagar eru óstöðvandi á heimavelli. vísir/getty
Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Golden State Warriors vann sinn 41. leik í röð á heimavelli þegar liðið bar sigurorð af Oklahoma City Thunder, 116-108, í Oracle Arena. Steph Curry var að vanda stigahæstur í liði Golden State með 26 stig en hann gaf einnig 10 stoðsendingar. Harrison Barnes kom næstur með 19 stig og Klay Thompson gerði 18. Fjörtíu stig frá Kevin Durant dugðu Oklahoma ekki til sigurs en fyrir leikinn í nótt var liðið búið að vinna fimm leiki í röð. Russell Westbrook átti einnig góðan leik með 27 stig og 12 stoðsendingar. Golden State er á toppnum í Vesturdeildinni með 46 sigra og fjögur töp. Þar á eftir kemur San Antonio Spurs sem vann fjögurra stiga sigur, 106-102, á Los Angeles Lakers á heimavelli. Þetta var fjórði sigur San Antonio í röð. Tim Duncan og Manu Ginobili léku ekki með San Antonio í nótt en það kom ekki að sök. LaMarcus Aldridge var stigahæstur í liði San Antonio með 26 stig en Kawhi Leonard kom næstur með 20 stig og 13 fráköst. Kobe Bryant skoraði 25 stig fyrir Lakers, þar af 16 í 3. leikhluta. Eftir tvo tapleiki í röð komst Cleveland Cavaliers aftur á sigurbraut með 99-84 sigri á New Orleans Pelicans. Kyrie Irving, LeBron James og J.R. Smith voru í aðalhlutverkum hjá Cleveland en þeir skoruðu samtals 76 af 99 stigum liðsins. Irving var með 29 stig, James 27 og Smith 20. Norris Cole var með 26 stig hjá New Orleans og Anthony Davis skilaði 24 stigum og 11 fráköstum.Úrslitin í nótt: Golden State 116-108 Oklahoma San Antonio 106-102 LA Lakers Cleveland 99-84 New Orleans Houston 79-96 Portland Charlotte 108-104 Washington Indiana 112-104 Detroit Philadelphia 103-98 Brooklyn Memphis 110-114 Dallas Minnesota 112-105 Chicago Phoenix 89-98 UtahCurry og Durant voru öflugir í nótt Gordon Hayward með rosalega troðslu Flottustu tilþrif næturinnar
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira