„Ég lærði svakalega mikið af henni bæði um nýja tækni sem hún notar og kynntist nýjum vörum. Karen er einna helst þekkt fyrir að gera flottar „glamour“ farðanir en er mjög fær á öðrum sviðum og gerir til að mynda flottustu „smokey“ förðun sem ég hef augum litið,“ segir Sigurlaug.

Námskeiðið verður haldið þann 15. september næstkomandi og er þetta fyrsta námskeiðið sem Karen heldur í Evrópu.
„Það er nú þegar mikil aðsókn á námskeiðið enda Karen stórt númer í förðunarheiminum. Við höfum sett af stað forsölu á miðum fyrir núverandi og fyrrverandi nemendur okkar og munum svo opna fyrir almenna skráningu von bráðar,“ segir Sigurlaug.

Við á Lífinu fengum Sigurlaugu til að sýna okkur heitustu sumarförðunina í ár en hún segir hana létta og að koparliturinn slái allt annað út um þessar mundir.
„Hér sýni ég eina útfærslu af skemmtilegri sumarförðun sem er líka mjög einföld í gerð en ég notaði aðeins tvo liti til þess að framkvæma hana en það eru litirnir Spirit frá Make Up Store og Coppering frá MAC. Útkoman varð svona mjúk, kopartónuð smokey-förðun en hana er hægt að gera með allskyns litum. Ég hef oft heyrt þann misskilning að smokey þurfi alltaf að vera mjög dökkt eða jafnvel bara svart. Ég nota til að mynda aldrei svarta augnskugga í minni förðun,“ segir Sigurlaug.

„Því miður fæst þessi farði ekki á Íslandi en í hans stað mætti til dæmis nota Studio Fix Fluid frá MAC. Yfir meikið notaði ég svo La Mer Translucent púður yfir allt andlitið en þetta er púður sem verður glært á húðinni en skilur eftir sig smá glans sem sést þó aðallega þegar tekin er mynd, rosalega fallegt,“ segir Sigurlaug.
Undir augun notaði hún svo Pro Longwear-hyljara frá MAC sem og Reflex Cover higlight hyljara frá Make up Store. „Sá síðarnefndi er algjörlega ómissandi fyrir mig en hann nota ég bæði á sjálfa mig og aðra. Hyljarinn er með skelplötugljáa sem birtir upp svæðið undir augunum án þess að mynda hvítan hring.“
Á kinnarnar notaði Sigurlaug sinn eftirlætiskinnalit, Coral Lace frá Make Up Store, og á varirnar Catty frá MAC og Sandstorm-varalitablýant frá Make Up Store en sá er ljós highlight-litur.
„Á augabrúnirnar notaði ég dipbrow frá Anastasia Beverly Hills í litnum chocolate og svo toppaði ég útlitið með því að nota flott augnhár frá Tanja lashes af tegundinni Greece en þess má geta að augnháralína Tönju Ýrar Ástþórsdóttur kom markað núna í vikunni,“ segir Sigurlaug að lokum.