Tíska og hönnun

Vel klædd með Kevin Bacon

Freyr Bjarnason skrifar
Harpa Einarsdóttir stendur á bak við merkið Ziska.
Harpa Einarsdóttir stendur á bak við merkið Ziska. Vísir/Valli
Á Facebook-síðu fatamerkis Hörpu Einarsdóttur, Ziska, birtist mynd af Hollywood-leikaranum Kevin Bacon við hlið ónefndrar konu á samkomu í Los Angeles fyrir skömmu.

Ástæðan fyrir myndbirtingunni er að konan klæðist kjól frá Ziska, sem hljóta að teljast ágætis meðmæli fyrir íslenska fatamerkið.

Stutt er síðan Harpa opnaði, ásamt þremur öðrum, verslunina Bauga og bein í Hafnarfirði sem heitir eftir annarri fatalínu Hörpu, Skulls and Halos.

Í versluninni er íslensk hönnun og list að mestu á boðstólum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.