Ekkert dregið undan í myndinni Óli Prik 21. janúar 2015 10:00 Framleiðandinn Grímar Jónsson, Ólafur Stefánsson og Árni Sveinsson leikstjóri. Vísir/ Brynjar Snær Þrastarson
Heimildarmyndin Óli Prik, um handboltamanninn og þjóðhetjuna Ólaf Stefánsson, verður frumsýnd 6. febrúar. Leikstjóri hennar er Árni Sveinsson og framleiðandi er Grímar Jónsson og fylgdi Árni Óla eftir í um eitt og hálft ár við gerð myndarinnar. „Það er kannski orðum aukið að ég hafi elt hann,“ segir Árni sem hitti Óla fyrst í Katar fyrir einu og hálfu ári, þegar hann var að fara að spila sinn síðasta leik sem atvinnumaður. „Myndin fjallar um ferlið þegar hann hættir í atvinnumennsku eftir 17 ár, flytur til Íslands og fer að þjálfa uppeldisfélagið sitt,“ segir Árni. Myndin er ferðalag þar sem áhorfendur fá að kynnast Óla náið. Hún er einlæg, persónuleg og ekkert dregið undan. „Þegar maður gerir svona myndir þá er maður að stíga inn í einhvern heim, í þetta sinn íþróttaheiminn. Það kom mér helst á óvart hvað það eru miklu meiri pælingar á bak við þetta sport en ég hélt og hvað það skipti Óla miklu máli. Það var svolítið hans, með alla þessa reynslu, að dýpka leikskilning og reyna að stækka þann þátt,“ segir Árni. En hvaðan kemur þetta nafn, Óli Prik? „Í einni senu í myndinni er Óli að ræða ímynd sína sem „Óli Stef“ sem er lituð af fortíðinni og frelsið í að finna sitt annað sjálf sem hann kallar Óla Prik, segir Árni. Hann segir umfjöllunarefni sem þetta, fólk á tímamótum, klassískt en þegar stærsta íþróttastjarna Íslands stendur á slíkum tímamótum getur ýmislegt óvænt gerst. „Þú ert kannski með einhverja rósrauða drauma, sem fara svo á einhvern allt annan hátt en þú hélst í fyrstu,“ segir hann.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira