Lífið

Pitt með regnboganeglur

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Brad Pitt er alltaf flottur.
Brad Pitt er alltaf flottur. Nordicphotos/Getty
Regnboganeglur leikarans eru glæsilegar.Nordicphotos/Getty
Leikarinn og hjartaknúsarinn Brad Pitt skartaði lökkuðum nöglum á Palm Springs International Film Festival verðlaunahátíðinni á dögunum þar sem hann kynnti myndina Selmu, en Pitt er einn af framleiðendum hennar.

Neglur Pitts vöktu mikla athygli en þær voru málaðar í öllum regnbogans litum og er þetta ekki í fyrsta skipti sem hann mætir á opinbera viðburði með lakkaðar neglur.

Um miðjan desember fjölluðu fjölmiðlar vestanhafs um þegar Pitt mætti með ljósblátt naglalakk á nögl litla fingurs á frumsýningu kvikmyndarinnar Unbroken sem leikstýrt var af eiginkonu hans, Angelinu Jolie.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.