Chicago með mikla yfirburði í sigri á Oklahoma City Thunder Kristinn Páll Teitsson skrifar 25. desember 2015 21:40 Russel Westbrook sækir hér inn að körfunni með Derrick Rose í bakinu. Vísir/getty
Chicago Bulls komst aftur á sigurbraut með 9 stiga sigri á Oklahoma City Thunder í kvöld en Chicago hafði tapað þremur leikjum í röð fyrir leikinn í kvöld. Chicago Bulls náði forskotinu strax á fyrstu mínútu leiksins og sleppti forskotinu aldrei en leikmönnum Oklahoma tókst að saxa á forskotið skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks í stöðunni 54-52. Þriðji leikhluti var hinsvegar í eign leikmanna Chicago Bulls sem náðu átján stiga forskoti skömmu fyrir lok leikhlutans og þrátt fyrir ágætis tilraunir leikmanna Oklahoma tókst þeim ekki að vinna upp það forskot í fjórða leikhluta. Lauk leiknum með 105-96 sigri Chicago Bulls og var Jimmy Butler stigahæstur með 23 stig en Pau Gasol bauð upp á tvöfalda tvennu með 21 stig ásamt því að taka 13 fráköst. Í liði Oklahoma voru það Kevin Durant og Russell Westbrook sem leiddu að vanda en Durant var stigahæstur með 29 stig og bætti Westbrook við 26 stigum.Bosh setur hér skot yfir Anthony Davis í leiknum í kvöld.Vísir/GettyÞá vann Miami Heat sex stiga sigur á New Orleans Pelicans í fyrsta leik dagsins 94-88 en framlengja þurfti leiknum eftir að staðan var 78-78 að venjulegum leiktíma loknum. Chris Bosh fór fyrir liði Miami Heat með 30 stig ásamt því að taka 10 fráköst en hann náði að svara fyrir stórleik Anthony Davis í liði Pelicans sem skilaði tvennu með 29 stig og 15 fráköst. Þetta voru aðeins fyrstu tveir leikir kvöldsins en alls fara fimm stórleikir fram í deildinni í kvöld.
NBA Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Sjá meira