Ingibjörg segir að það taki sig um það bil þrjá daga að koma öllu jólaskrautinu upp. „Ég er mjög skipulögð í þessu og passa að ganga vel frá öllu þegar jólin eru búin. Ég er búin að safna jóladóti frá því ég var barn enda alltaf haft þennan áhuga. Ég er mikið jólabarn og finnst þetta meiriháttar skemmtilegt. Núna er safnið mitt orðið ansi stórt og þess vegna þarf ég ekki að bæta miklu við. Það er helst ef ég sé eitthvað alveg sérstakt,“ segir hún. „Það er frekar að maður þurfi að endurnýja ljósaseríurnar.“

Ingibjörg hugsar út í hvert einasta smáatriði og hver hlutur á sinn stað á heimilinu. „Það fær enginn annar að koma nálægt þessum skreytingum,“ segir hún og hlær. Hún er með heilt jólaþorp á borðstofuskenknum sem á að sýna og tákna annríki í verslunargötu á Þorláksmessu. Síðan skreytir hún arin með hreindýrum, litlum jólatrjám, jólasveinum og grenilengju. Í eldhúsinu hangir jólasnúra með litlum fötum og eldhúsglugginn skartar alls kyns smáhlutum. „Þetta er ævintýraheimur fyrir börn. Barnabarnið mitt er hérna hjá mér alveg dáleitt af þessari dýrð. Ég leyfi því að skoða þetta allt og snerta. Þetta er ekki heilagt,“ segir hún.

„Á aðfangadag höldum við í hefðirnar. Þá er hamborgarhryggur og heimagerður jólaís á eftir. Ég var alltaf með forrétt en núna hef ég hann í hádeginu og það eru allir ánægðir með það,“ segir jólabarnið.





