Lífið

Bubbi og DIMMA gefa út tvöfalda tónleikaplötu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það má búast við að þessi plata verði nokkuð góð.
Það má búast við að þessi plata verði nokkuð góð.
Samstarf Bubba Morthens og þungarokksveitarinnar DIMMU hefur slegið í gegn frá því að það var kynnt í lok árs 2014 og hefur eftirspurnin eftir þessum bræðingi verið gríðarlega mikil. Saman hafa þeir fyllt stærstu tónleikasali landsins og komu fram á mörgum af stærstu tónlistarhátíðum síðastliðins sumars og nægir að nefna Þjóðhátíð, Eistnaflug, Hammondhátíð og Bræðsluna.

DIMMA hefur fært tónlist Utangarðsmanna og Das Kapital í sinn þunga og harða búning og Bubbi smellpassar við sveitina enda hefur hann sjaldan verið harðari og í meiri rokkgír en einmitt núna. Í mars komu þessir félagar saman á tveimur stútfullum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu sem þar sem hljóð og mynd voru tekin upp.

Þessar upptökur koma núna út á tvöföldum geisla og mynddiski sem ber einfaldlega nafnið Bubbi OG DIMMA. Upptökur frá Bræðslunni 2015 koma með sem aukaefni á DVD diskinum en þar lék DIMMA nokkur af sínum þekktustu lögum áður en BUBBI steig á sviðið með þeim og tryllti stappfullan salinn með sínum mögnuðu rokklögum sem allir þekkja.

Lög eins og Samband í Berlín, Hírósíma, Poppstjarnan og Blindsker fá að hljóma í ógurlegum útsetningum DIMMU. Frægt er orðið þegar ryðinu rigndi niður úr lofti braggans á Bræðslunni enda hefur annar eins kraftur sjaldan verið leystur þar úr læðingi þó að byggingin hafi staðið þarna í áratugi.

Hér að neðan má sjá upptöku frá tónleikunum, þegar þessir mögnuðu listamenn tóku lagið Samband í Berlín eftir Utangarðsmenn.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.