Lífið

Hermenn endugerðu Stjörnustríðstiklu með því sem þeir höfðu við höndina

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Skjáskot
Mátturinn er svo sannarlega með áhafnarmeðlimum flugmóðurskipsins USS Dwight D. Eisenhower.

Þeir ákváðu á dögunum að endurgera stikluna fyrir nýjust Star Wars-myndina, The Force Awakens, nánast ramma fyrir ramma. Þrátt fyrir að hermennirnir hafi ekki aðgang að vélmennum eða eyðimerkurlandslagi þá geta þeir svo sannarlega nýtt sér alvöru flugvélar.

Afrakstur vinnu þeirra má sjá hér að neðan sem ber einfaldlega heitið Sjávarstríð.

Hér að neðan má sjá upprunalegu stikluna til samanburðar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.