Curry magnaður í einn einum sigri Golden State | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 28. nóvember 2015 11:14 Curry í leiknum í nótt. vísir/getty
Sigurganga núverandi meistaranna í NBA-deildinni, Golden State Warriors, virðist engan enda ætla að taka. Þeir unnu sinn sautjánda leik í röð í deildinni í nótt nú gegn Phoenix, en þeir hafa unnið alla sína leiki á tímabilinu. Þeir byrjuðu af miklum krafti og leiddu með átján stigum í hálfleik, 75-57, en lokatölur urðu svo 135-116. Sem fyrr var Stephen Curry magnaður í liði Golden State, en hann skoraði 41 stig. T. J. Warren gerði 28 stig fyrir Phoenix og tók þar að auki sex fráköst. Þetta var sautjándi sigurleikur Golden State á tímabilinu og þeir halda því áfram að slá metið um flesta sigurleiki í röð, eins og Fréttablaðið fjallaði um í gær. Phoenix hefur tapað níu leikjum og unnið sjö leiki á tímabilinu. Það gengur ekki hins vegar né rekur hjá Philadelphia 76ers. Þeir töpuðu í nótt sínum sautjánda leik í röð í deildinni, en þeir töpuðu þá fyrir Houston með tveggja stiga mun, 114-116. Þeir slóu því met með flesta tapaða leiki í röð, en þetta var 27. leikurinn í röð sem Philadelphia tapar; sautján á þessu tímabili og tíu á því síðasta. Hinn magnaði James Harden var frábær í liði Houston, en hann gerði heil 50 stig og gaf þar að auki átta stoðsendingar. Robert Covington gerði 28 stig fyrir Philadelphiu og tók þar að auki sjö fráköst. LeBron James skoraði 25 stig fyrir Cleveland sem vann fimm stiga sigur á Charlotte, 95-90, eftir að staðan hafi verið 50-52, Charlotte í vil í hálfleik. Góður síðasti leikhluti tryggði Cleveland sigur, en þetta var tólfti sigur Cleveland í sextán leikjum í vetur. Öll úrslit og skemmtileg myndbönd frá tilþrifum næturinnar má sjá hér að neðan.Öll úrslit næturinnar: Milwaukee - Orlando 90-114 Cleveland - Charlotte - 95-90 Washington - Boston 78-111 Miami - New York 97-78 Philadelphia - Houston 114-116 Chicago - Indiana 92-104 Detroit - Oklahoma 87-103 Atlanta - Memphis 116-101 San Antonio - Denver 91-80 Golden State - Phoenix 135-116 Minnesota - Sacramento 101-91 New Orleans - LA Clippers 90-111 Topp-10 næturinnar: Harden fór í 50 stig í nótt: Þrista-veisla hjá Golden State í nótt: Allt það helsta frá Curry:
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira