Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar og auðveldar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum.
Fiskur og franskar með tartarsósu
Ýsa í bjórdeigi
800 g ýsa
100 g gróft salt
200 g hveiti
4 g paprikuduft
4 g laukduft (blanda saman Öllum þurrefnum)
2 stk. sítróna
Stráið helmingnum af saltinu á bakka og leggið ýsuna ofan á það. Takið hinn helminginn af saltinu og dreifið yfir ýsuna. Látið saltið standa í 20 mín. Skolið saltið af ýsunni undir köldu vatni og þerrið hana með eldhúsbréfi. Skerið ýsuna í ca 30 gr steikur þvert á flakið. Veltið ýsunni upp úr hveiti og setjið hana svo í bjórdeigið og steikið í ca. 3 mín eða þar til hún er orðin gyllt og falleg á litinn. Setjið á grind og látið olíuna leka af henni. Berið fiskinn fram með sítrónubát.
Bjórdeig
550 g bjór
50 g vodka
400 g hveiti
10 g salt
10 g matarsódi
Sigtið öll þurrefnin saman í skál og blandið svo bjórnum og vodkanum smá saman út í og hrærið í á meðan.
Heimagerðar franskar
6 stk. bökunarkartöflur
4 lítrar af olíu til djúpsteikingar
sjávarsalt
svartur pipar
Skerið kartöflurnar í stórar franskar og setjið í sjóðandi vatn og sjóðið þar til þær eru alveg að verða soðnar í gegn. Setjið franskarnar á grind með bakka undir og inn í ísskáp. Látið kólna þar í 30 mín. Þetta er gert til að franskanar myndi húð að utan svo að þær verði stökkari. Takið franskarnar út úr ísskápnum og setjið í 130 gráðu heita olíu og steikið þær þar í 8 mín.
Setjið þær aftur á grind og látið olíuna leka af þeim. Setjið franskarnar því næst inn í frysti og frystið þær. Takið franskarnar út úr frystinum og látið standa út í ca 5 mín og setjið þær svo í 180 gráðu heita olíuna og steikið í ca 5 mín. Kryddið með saltinu og piparnum.
Tartarsósa með dilli
250 g majónes
50 g súrar smá gúrkur (smátt skornar)
40 g kapers
1 msk. skallotlaukur (fínt skorinn)
½ sítróna
Sjávarsalt
Svartur pipar
2 msk. gróft skorið dill
Setjið allt hráefnið saman í skál og blandið vel saman, Smakkið sósuna til með sítrónusafa og salti og pipar.