Hafa ekki skorað sjálfir en eru samt komnir með tvö stig í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2015 16:58 Frá leik Astana og Atlético Madrid í dag. Vísir/AFP
Astana frá Kasakstan náði í dag í stig á heimavelli á móti spænska liðinu Atlético Madrid þegar liðin gerðu markalaust jafntefli í Astana. Astana-liðið hefur þar með náð í tvö stig í fyrstu fjórum leikjum sínum en leikmenn liðsins eiga þó enn eftir að skora mark. Astana gerði 2-2 jafntefli á heimavelli í fyrsta heimaleik sínum á móti tyrkneska liðinu Galatasaray en þá voru bæði mörk Astana-liðsins sjálfsmörk hjá leikmönnum Galatasaray. Leikmenn Galatasaray hafa þar með skorað einu mörk Astana í Meistaradeildinni en þetta er í fyrsta sinn sem þetta lið frá Kasakstan kemst í riðlakeppnina. Atlético Madrid vann 4-0 sigur þegar liðin mættust á Spáni í síðustu umferð en nú tókst Fernando Torres og félögum ekki að finna leið í markið hjá Kasökunum. Þetta var í fyrsta sinn sem Astana-liðið heldur hreinu í Meistaradeildinni en liðið var búið að fá á sig átta mörk í fyrstu þremur leikjum sínum og tvö mörk eða meira í öllum leikjunum. Atlético Madrid er nú samt á fínum málum í efsta sæti C-riðilsins með sjö stig og einu stigi meira en Benfica sem tekur á móti Galatasaray í kvöld. Galatasaray er með 4 stig.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira