Haukar slógu út Íslandsmeistarana | Úrslit kvöldsins Kristinn Páll Teitsson skrifar 29. september 2015 23:15 Vísir/Auðunn
Haukar unnu í kvöld óvæntan 88-82 sigur á KR í 8-liða úrslitum Lengjubikars karla í körfuknattleik en Ægir Þór Steinarsson, nýjasti liðsmaður KR, fór á kostum í leiknum. KR tefldi fram sterku liði þrátt fyrir að það vantaði leikmennina Michael Craion og Helga Má Magnússon en í liði KR mátti finna Pavel Ermolinskij og Ægi Þór úr landsliðshópnum og Brynjar Þór Björnsson úr æfingarhópnum. Haukar náðu strax 12 stiga forskoti að fyrsta leikhluta loknum og var KR alltaf að eltast við forskotið það sem eftir lifði leiksins. Náðu þeir forskotinu um tíma í fjórða leikhluta en Haukar settu þá aftur í gír og sigldu sigrinum heim. Stephen Michael Madison fór fyrir liði Hauka með 23 stig ásamt því að taka 13 fráköst og þá bætti Haukur Óskarsson við 20 stigum með 57% skotnýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna. Í liði KR var það Ægir Þór sem var stigahæstur með 25 stig en þar að auki tók hann 8 fráköst og stal boltanum 8 sinnum.Marvin var með átta stig í kvöld.Vísir/VilhelmByrjunarliðsmenn Þórs frá Þorlákshöfn sáu um stigaskorunina í 85-75 sigri á Tindastól í Þorlákshöfn í kvöld. Aðeins fjögur stig komu frá leikmönnum sem byrjuðu á bekknum í sannfærandi sigri heimamanna sem slepptu aldrei forskotinu eftir að hafa náð því um miðbik annars leikhluta. Þá vann Stjarnan góðan sigur á Grindavík í Röstinni í kvöld. Eftir að hafa verið einu stigi undir að loknum fyrsta leikhluta leiddu leikmenn Stjörnunnar það sem eftir lifði leiksins. Alfonzo Coleman fór fyrir liði Stjörnunnar með 22 stig en í liði Grindavíkur var Jóhann Árni Ólafsson stigahæstur með 18 stig. Þá gerði FSu út um leik liðsins gegn Njarðvík strax í fyrri hálfleik í leik liðanna í kvöld. FSu var með 29 stiga forskot í hálfleik og náði þegar mest var 44 stiga forskoti en leikmönnum Njarðvíkur tókst að klóra í bakkann í lokaleikhlutanum og lauk leiknum með 113-78 sigri FSU.
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira