Lífið

Fagnar fertugsafmælinu með fjölskyldunni

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Barði hefur gaman af því að halda veislur þegar tími gefst til og segir þrítugsafmælið hafa verið eftirminnilegt.
Barði hefur gaman af því að halda veislur þegar tími gefst til og segir þrítugsafmælið hafa verið eftirminnilegt. Mynd/LisaRoze
Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson á afmæli í dag og heldur upp á fertugsafmælið í faðmi fjölskyldunnar.

„Ég ætla að eyða deginum með fjölskyldunni. Mér finnst gaman að halda stórafmælispartí en það verður bara svolítið seinna,“ segir hann og bætir við að hann haldi yfirleitt upp á afmæli þegar tími gefst til enda yfirleitt nóg um að vera.

„Ég hef stundum haldið afmælisboð fyrir vini kannski sex mánuðum seinna, bara þegar tími gefst til. Þá notar maður það sem afsökun til að hitta vini sína.“

Barði segir þrítugsafmælið hafa verið sérstaklega eftirminnilegt, en þá sló hann upp veislu ásamt góðum vinum. „Þá hélt ég partí. Það lukkaðist mjög vel en myndatökur voru bannaðar þannig ég ætla ekkert að ræða það sem fór fram þar,“ segir hann og hlær.

Í afmælinu var opið svið og nýttu vinir og vandamenn Barða sér það en fjölmargir af hans nánustu vinum eru tónlistarmenn, enda hefur Barði verið viðloðandi tónlistargeirann í langan tíma, fyrst með hljómsveitinni Bang Gang sem stofnuð var árið 1996 og hefur gefið út fjórar breiðskífur, You árið 1998, Something Wrong árið 2003, Ghosts from the Past árið 2008 og The Wolves Are Whispering sem kom út fyrr á árinu. Auk þess hefur hann samið tónlist fyrir auglýsingar og bíómyndir. 

Hann er einnig meðlimur í hljómsveitinni Lady & Bird, ásamt Keren Ann, og Starwalker, sem er samstarfsverkefni Barða og Jean-Benoît Dunckel sem er einn þekktastur fyrir að vera annar helmingur frönsku hljómsveitarinnar Air.

Barði segist ekki gera mikið af því að velta sér upp úr afmælum og þau valdi honum engu sérstöku hugarangri. „Ég spái voðalega lítið í því. Allavega verð ég ekkert leiður yfir því en maður fer kannski að hugsa hvað maður vill nýta tímann í,“ segir hann og bætir við að hann í það minnsta haft engar sérstakar áhyggjur af því að eldast útlitslega.

„Ég held ég hafi verið spurður um skilríki í ríkinu þegar ég var þrjátíu og þriggja eða eitthvað svoleiðis þannig ég held ég sé alveg ágætur með það,“ segir hann og hlær.

Afmælum fylgja gjarnan gjafir en Barði segir skemmtilegasta fylgifisk afmæla að hitta vini og fjölskyldu. Þó viðurkennir hann að það séu auðvitað alltaf einhverjar gjafir sem séu sérstaklega eftirminnilegar þegar hann er inntur eftir því.

„Ég fékk tattú frá Fjölni félaga mínum en ég á reyndar enn eftir að láta setja það á mig,“ segir Barði sem segir ástæð þess að hann hafi ekki enn látið flúra sig þá að hann hafi ekki enn ákveðið hvernig tattúið eigi að vera. „Ég fékk það í þrítugsafmælisgjöf, ég ætla nú að rukka hann um það þegar ég er búinn að ákveða mig, það kemur einhvern tímann að því.“ 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.