Lífið

Þekkir þú stjörnurnar frá unglingsárunum?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þekkir þú þennan?
Þekkir þú þennan? vísir
Útlit Hollywood stjarnanna skiptir fólki oft á tíðum miklu máli og er fylgst með hverju skrefi hjá þessu fólki.

Á síðunni Daily Edition er farið yfir nokkrar stjörnur og hvernig þær litu út á sínum yngri árum. Sumar þeirra hafa breyst meira en aðrar. 

Angelina Jolie
Angelina Jolie er leikkona frá Bandaríkjunum sem hefur einu sinni unnið Óskarinn.
Brad Pitt
Brad Pitt er kominn á fimmtugsaldurinn í dag. Einn frægasti leikari í heiminum í dag og er einmitt giftur Angelina Jolie.
Brooke Shields
Brooke Shields fæddist árið 1965 og var mikil barnastjarna vestanhafs á sínum tíma. Hún hefur leikið í fjölmörgum hlutverkum síðan þá.
Christian Bale
Christian Bale hefur slegið í gegn undanfarin ár og leikið stór hlutverk í risa kvikmyndum. Hann hefur t.d. leikið sjálfan Batman. Svona leit kallinn út.
George Clooney
George Clooney er einn þekktasti leikari heimsins í dag. Hann er bæði leikari, handritshöfundur og leikstjóri.
Gywneth Paltrow
Gywneth Paltrow er bandarísk leikkona sem hefur oft sést á hvíta tjaldinu. Hún var í mörg ár gift Chris Martin, söngvara Coldplay.
Johnny Depp
Johnny Depp er bandarískur leikari sem hefur í gegnum árin verið talin einn af þeim allra myndalegustu.
John Lennon og Paul McCartney
John Lennon og Paul McCartney voru, eins og margir vita, í hljómsveitinni Bítlunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.