Í leit að stöðugleika Sigríður Jónsdóttir skrifar 15. september 2015 22:00
4:48 Psychosis Þjóðleikhúsið – Kúlan Höfundur: Sarah Kane Edda production í samstarfi við Þjóðleikhúsið, Aldrei óstelandi, Icelandair, Eimskip og Vodafone Framleiðandi: Edda Björg Eyjólfsdóttir Leikari: Edda Björg Eyjólfsdóttir Leikstjórn: Friðrik Friðriksson Tónlist: Magnús Örn Magnússon og Stefán Már Magnússon Leikmynd: Stígur Steinþórsson Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Hermann Karl Björnsson Þýðing: Sigurlaug „Didda“Jónsdóttir Dramatúrg: Stefán Hallur Stefánsson Konan sem stendur á sviðinu er ónefnd. Hún er blýföst í hyldýpi þunglyndis og berst við að finna ljósið í myrkrinu. Á rétt rúmum klukkutíma er áhorfendum boðið að stíga inn í hugarástand óstjórnlegrar geðtruflunar, baráttu upp á líf eða dauða. Frumsýningardagur 4:48 Psychosis á fimmtudaginn síðastliðinn var einnig Dagur sjálfsvígsforvarna, kannski ágætlega við hæfi. Forsaga leikskáldsins sem tók sitt eigið líf er flókin, áhugaverð og sorgleg allt í senn en Sarah Kane má ekki vera skilgreind einungis út frá endalokum sínum. Verk hennar verður að skoða út frá öðrum sjónarhornum því Kane var stórbrotið leikskáld, þótt hún væri sjálf brotin. Kúlan er sérlega spennandi sviðsrými sem Þjóðleikhúsið mætti nýta betur en sýningin smellpassar þarna inn. Sviðsetning Friðriks Friðrikssonar er stundum nær gjörningi frekar en leiksýningu sem er athyglisverð nálgun. Edda Björg Eyjólfsdóttir stendur einangruð á fjölunum en ekki ein því tónlistarmennirnir Magnús Örn Magnússon og Stefán Már Magnússon eru staðsettir í vinstra horni sviðsins. Stígur Steinþórsson hannar sviðsmyndina af kostgæfni en hún er stílhrein; einungis tvö sjónvörp mynda kjarna hennar. Gríðarleg ábyrgð hvílir á herðum Eddu Bjargar og hlutverkið er gífurlega krefjandi. Hún sýnir mikið þor að takast á við þetta óendanlega svartnætti og á hrós skilið fyrir hugrekkið. En frammistaða hennar var ekki alltaf samstíga grófleika textans, allavega nær hún ekki nægilega föstum tökum á hlutverkinu. Bestu augnablikin eiga sér stað þegar Edda Björg sleppir algjörlega fram af sér beislinu og opnar innra líf þessarar konu upp á gátt. En stundum verður leikur hennar örlítið eintóna sem dregur kraftinn úr textanum. Einn af fáu leikmununum sem hún notast við er myndavél en upptökunni er varpað á bakvegg sviðsins. Þannig komast áhorfendur eins líkamlega nálægt Eddu Björgu eins og hægt er en þetta hefur fjarlæg áhrif á sama tíma. Aftenging verður á vissum augnablikum óþægileg. Ekki í þeim skilningi að áhorfandinn fái innsýn í riðlaða veröld aðalpersónunnar heldur myndast fjarlægð við efnið. Stundum er myndavélanotkunin einstaklega vel heppnuð en á öðrum tímapunktum dofna áherslurnar eða hverfa inn í tækjabúnaðinn. Einn stóran galla má þó finna á sýningunni og leikstjórn Friðriks: Tónlistaratriðin þar sem Edda Björg syngur með bandinu eiga alls ekki heima í sýningunni. Lagasmíðar PJ Harvey eru magnaðar en ákvörðunin um að skeyta þeim inn texta Kane á þennan hátt er undarleg í besta falli og jaðrar við viðvaningshátt. Edda Björg er fær söngkona en atriðin valda truflun í framvindunni sem nokkurn tíma tekur að komast yfir í þau tvö skipti sem tónlistaratriðin eiga sér stað. Á yfirborðinu virðist texti Kane kannski vera einfaldur en blekkingin liggur í ljóðrænu valdi hennar á endurtekningu, takti og orðavali. Þýðing Diddu er áhrifamikil þó hún misstígi sig í einstaka tilfellum en yfirhöfuð er þarna vel að verki staðið. Sýningin, með Eddu Björgu í fararbroddi, á eflaust eftir að eflast með fleiri sýningardögum þegar þrenningin á sviðinu finnur takt sem þeytir tilfinningunum lengra og dýpra en á þessum tímapunkti nær hún ekki takmarki sínu. Niðurstaða: Misjöfn sýning en inniheldur samt sem áður glimrandi augnablik.
Menning Mest lesið Miklu meira en bara ,,söngkonan” Hildur Tónlist Krakkatían: Grænland, galdrakarl og Greppikló Lífið „Lífið væri svo miklu leiðinlegra ef ég ætti ekki bróður með Downs“ Lífið Fötlunin ekki stærsta áfallið heldur veikindin sem fylgdu Lífið Grundvallarmisskilnings gæti um þaksvalir á Íslandi Lífið Troðfullt hús og standandi lófaklapp Menning Kenndi sjálfum sér um í tuttugu ár Lífið Fréttatía vikunnar: Bólfélagar, fjársvik og flóð Lífið Ryan Reynolds og Taylor Swift hafi beitt hann þrýstingi Lífið Ragna Sigurðardóttir á von á barni Lífið Fleiri fréttir Illa bruggaðar Guðaveigar Vínartónleika skorti léttleika: Dansararnir stálu senunni Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Nýársswing með handbremsu Getuleysi á stóra sviðinu Barist um arfinn í Borgó Brostnar væntingar á Frostrósum Jólakötturinn hvæsti á tónleikagesti Bríet olli vonbrigðum Sjá meira