Ópera og franskar Jónas Sen skrifar 20. ágúst 2015 13:00 Players í Kópavogi.
Tónlist William Walton: The Bear. Óperuuppfærsla á barnum á Players í Kópavogi. Einsöngvarar: Guja Sandholt, Pétur Oddbergur Heimisson og Hugi Jónsson. Einhver undarlegasti vettvangur fyrir óperusýningu hlýtur að vera barinn Players í Kópavoginum. Þangað lá leiðin á sunnudagskvöldið. Tilgangurinn var að sjá óperuna Björninn eftir William Walton frá árinu 1967. Hún er mjög stutt fyrir óperu að vera, um klukkutíma löng og er í einum þætti. Söguþráðurinn er einfaldur. Ekkja fær náunga í heimsókn sem krefur hana um að borga skuld hins látna eiginmanns. Samskipti þeirra verða fljótt stormasöm, en svo verða þau ástfangin. Í óperunni eru aðeins þrír söngvarar og hljómsveitin samanstendur af litlum hópi hljóðfæraleikara. Gert er ráð fyrir strengjum, hörpu, slagverki, píanói, þremur málmblásurum og fjórum tréblásurum. Seinkun var á að óperusýningin hæfist, en á meðan gæddu gestirnir sér á hamborgurum og frönskum, eða sötruðu bjór. Nálægt barnum við lítið borð sat ung kona, mjög máluð. Hún virtist sofandi. En svo reis hún á fætur og settist við píanó rétt hjá. Þar með var ballið byrjað. Segjast verður eins og er að þetta var ekki gott. Fyrir það fyrsta vantaði hljómsveitina! Það má fyrirgefa að píanóleikari reyni að spila allar raddir heillar hljómsveitar, en þá verður píanóið að vera stór flygill. Hljóðfærið á Players var hins vegar óttalegur garmur. Tónninn var grunnur og ámátlegur. Þótt píanóleikarinn Matthildur Anna Gísladóttir spilaði vasklega á það, dugði það engan veginn til. Ekki er heldur hægt að hrópa húrra fyrir söngvurunum. Það hjálpaði ekki að hljómburðurinn á Players var slæmur fyrir lifandi tónlistarflutning. Þar var afar lítil endurómun. Fyrir vikið var söngurinn steindauður. Hljómburðurinn var þó engin afsökun. Söngurinn sjálfur var nemendalegur, það var helst Guja Sandholt sem skilaði sínu hlutverki sómasamlega. Frammistaða Péturs Oddbergs Heimissonar var aftur á móti tilþrifalítil og óspennandi. Og Hugi Jónsson virtist hreinlega ekki ráða við hlutverk sitt, hvorki söng- né leiklega. Í sjálfri sér er ópera Waltons vel heppnuð. Í henni er hvergi dauður punktur. Tónlistin er stórbrotin. En það sem borið var á borð á Players var bara skrumskæling. Fimmaurabrandaraleikstjórn Tryggva Gunnarssonar var svo aumt yfirklór og bætti ekki úr skák. Hvílík vonbrigði.Niðurstaða: Illa hljómandi píanó, slappur söngur og ósannfærandi leikstjórn. Útkoman var slæm.
Menning Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Hera Björk mun kynna stigin Lífið Fleiri fréttir Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Bryan Adams breytti Eldborg í grátkór íslenskra karla Þetta er ástæðan fyrir því að þú átt aldrei að bjóða óperusöngvara í matarboð Spegill, spegill, herm þú mér, hve léleg endurgerðin er Rislítil ástarsaga Sjá meira